www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Plants and pirates
Sunnudagur, 01. febrúar 2004

Ég fór í garðheima í gær og keypti mér fræ. Búin að setja upp litla gróðurhúsið á stofuofninn. Af Áströlsku runnunum eru tvær plöntur eftir, allar hinar dauðar. Ég er með þessar tvær síðustu í gjörgæslu í þeirri veiku von að þær lifi áfram. Það er pointless að birta mynd af þeim því þær hafa ekkert vaxið síðan síðast. Íslenskt skammdegi er ekki að virka fyrir þessa græðlinga enda gróðursetti ég þá á kolvitlausum tíma. Það sem fór á ofninn í gær er hinsvegar alveg by the book.

passion_flower_tendril.jpgÍ þetta sinn ætla ég að rækta passion flower. Ég sá þessa plöntu í heimahúsi í vetur og finnst hún alveg rosalega falleg. Ég féll ekki fyrir blóminu heldur gripörmunum á stilkunum eins og myndin hér til hliðar sýnir, þar sem griparmurinn hefur gripið í sjálfan sig. Þetta er klifurplanta eins og Hoyan og vex víst eins og illgresi. Það finnst mér gott.

Fyrst ég var að setja gróðurhúsið upp aftur gróðursetti ég ýmis önnur fræ. Burkna eins og amma mín átti og fullt af kryddjurtum.

Annars sá ég loksins sjóræningjamyndina um svörtu perluna í gær og ég skil vel af hverju Johnny Depp er tilnefndur til Óskarsverðlauna. Hann er alveg frábær í þessari mynd. Tóti fór í vinnuna í morgun. Hann var í vinnunni í gær til klukkan átta í gærkvöldi. Áður en ég veit af verður hann trúlofaður einhverri samstarfskonunni sinni því það er eini sénsinn sem hann á ef hann ætlar að halda sambandi gangandi, nema hann fari að komast á msn aftur. Þá gæti hann hitt mig og krakkana þar once in a while... Verst er að hann tók sjóræningamyndina með sér til að skila henni en ég ætlaði að láta hana rúlla aftur í dag mér til ánægju og yndisauka....

On the bright side... þá er verið að vinna í sjóræningamynd nr 2 sem á að koma 2005, starring Johnny Depp as Captain Jack Sparrow!


| anna | 12:56 |
comments

Sæl frænka
Vill svo ótrúlega vel til að ég horfði líka á þessa frábæru sjóræningjamynd í gærkvöld með eiginmanninum og frumburðinum. Nutum þess öll að horfa á Johnny Depp sem var frábær.....

Nr. 1 | posted by: edda | 1.02.2004 | 20:05:25 | [+] |

já kona góð, þá er komin á þig linkur

Nr. 2 | posted by: Hel | 2.02.2004 | 12:48:37 | [+] |

Anna mín; þú verður að athuga að Tóti vinnur á Fréttablaðinu sem er ekki neinn venjulegur vinnustaður og alls ekki fyrir venjulegt fólk að vinna þar enda Tóti ekki enitt venjulegur maður frekar en ég og aðrir sem þar vinna.
Makar okkar eiga ekki neinn annan kost en láta þetta yfir sig ganga og taka þessu með æðruleysi eða hreinlega að ganga út og segja bless. Minn er löngu hættur að reyna að segja nokkuð og meira segja hættur að væna mig um framjáhald; það gerði hann lengi vel.
Annars er það meða ólíkindum hvað fók er sauðtryggt sínum þarna; það er svo mikið að gera að menn mega ekki einu sinni vera a því að makka við hitt kynið. Hef aldrei unnið á vinnustað þar sem ekki er eitthvað spennandi í gangi sem hægt er að slúðra um; en ekki á Fréttablaðinu.
Flott blómið.
Begga

Nr. 3 | posted by: Begga | 3.02.2004 | 0:51:10 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web