Laugardagur, 14. febrúar 2004
Organistinn kommentar um það þegar ungir drengir á BMW hrópuðu að honum: "nice ass grandad" og héldu þá að dóttir hans væri konan hans og "nice ass" kommentið átti við hana.
Mega miðaldra menn ekki lengur eiga unglingsdætur án þess að fólk haldi að þetta séu kærusturnar þeirra?
Þegar mamma og pabbi voru skilin og pabbi búinn að fá íbúð í Vesturbænum afhenta fórum við pabbi í Melabúðina að kaupa "í búið", því ég bjó hjá honum. Stuttu síðar fór ég að vinna í Melabúðinni og þá var mér sagt að það héldu allir í búðinni að við værum par. Ég var sautján ára, hann forty something. Ég spurði þau af hverju þau héldu það.. en fékk engin vitræn svör.
Nítján ára og á leiðinni á Þjóðleikhúskjallarann að hitta þáverandi kærasta sem vann þar. Spurði pabba hvort hann vildi bara ekki koma með þar sem Þjóðleikhúskjallarinn var fullur af fólki á hans aldri hvort eð er. Hann kom með.
Þegar við komum á staðinn skildu leiðir. Seinna um kvöldið hitti ég pabba á barnum, og spurði hvort hann væri ekki að skemmta sér vel. Maðurinn sem pabbi var að tala við leit á mig, furðu lostin, og sagði orðrétt: "Djöfull hefurðu yngt upp maður!".
Þessi sami maður bjó á sömu hæð og við þegar fjölskyldan bjó í Engihjalla. Hann á að muna eftir mér frá því ég var sjö ára... Pabbi sprakk auðvitað úr hlátri og leiðrétti manninn sem varð eins og kvikindi í framan.
Svona getur lífið verið.
Annars var ég að horfa á myndina Holes í gær. Mæli eindregið með þessari mynd. Frábær saga.
Horfði líka á American (Pie) Wedding í gær. Mér fannst þessi mynd hrikalega fyndin en ógeðsleg á köflum. T.d. gat ég ekki horft á atriðið þar sem Stifler kjamsar á.. yuck! Ég gat ekki horft en ég gat hlustað og hlegið að grey Stifler þegar hann reyndi af veikum mætti að bjarga sér úr klúðrinu sem hann var búinn að koma sér í. Þessar myndir væru ekkert án Stifler og Jim's dad. Stifler er æði. - og Stifler's mom... úff...
Ég hefði nú bara farið að gráta ef Finch hefði ekki fengið Stifler's mom einu sinni enn. Hot par.
Dauðöfunda auðvitað Stifler's mom.. mér finnst Finch hrikalegur sjarmör.
Skrítið með Finch og Stifler's mom. Ég myndi ekki place-a þau útá götu sem par..