Jæja...
Miðvikudagur, 18. febrúar 2004
Bloggið hefur setið á hakanum síðustu daga. Ég er búin að vera í stífu de-toxi síðan á mánudaginn. Alla síðustu viku voru reyklausir "dagar" hjá mér. Nánari skilgreining... ég var reyklaus frá klukkan níu á morgnana og til fimm á daginn. Á sunnudaginn reykti ég síðustu sígarettuna og ég er búin að vera reyklaus síðan. Ég ákvað að sleppa nikótín tyggjóinu í þetta sinn og ef ég skil þetta rétt.. þá á líkaminn að vera búin að losa sig við allt nikótín á 10 dögum. Það má vel vera að allt nikótín fari á tíu dögum.. en ég efast um að öll tjaran og hin drullan fari langt. Það er einmitt þess vegna sem mig langar að fara í sogæðanudd.
Ég þarf auðvitað ekki að taka það fram en ég er hætt að drekka kók og borða nammi. Komin í epli, hrökkbrauð með gúrku og bara ét trefjar beint upp úr trefjapokanum. Veitir ekki af því maður fær hægðartregðu dauðans þegar maður hættir að drekka kók að staðaldri. Sama gildir um þá sem hætta að drekka kaffi skilst mér. Bara eins og að setja kork tappa upp í óæðri jú nó..
Í morgun ætlaði ég svo að stíga skrefið til fulls, vakna snemma og fara í sund. Doddi kom í veg fyrir það plan þegar hann vakti okkur klukkan fimm í nótt því hann var svo þyrstur og vildi fá vatn að drekka. Mér fannst þetta nú skrítið svo ég náði í mælinn.. jú, jú.. drengurinn með blússandi hita. Við gáfum honum hitastillandi en ég gat ekki sofnað aftur. Ég gat ekki heldur farið í sund því ég er haldin ákveðnum sjúkleika. Þegar Doddi verður veikur verð ég alveg rosalega hrædd um hann. Ég fór ekki í sund. Ég var upptekin af því að gefa Dodda morgunmat, mónitora hvort honum var illt og hvar honum var illt ef honum var þá illt.. strjúka honum um ennið og halda utan um hann.
Tóti var hjá honum í dag. Fór með Dodda til læknis sem sagði að hann væri með vírus kvef og það væri ekkert hægt að gera. Hann myndi rjúka upp í hita öðru hvoru þangað til hann væri búinn að ná þessu úr sér.
Að allt öðru.
Í dag rifjaðist upp fyrir mér eitthvað sem ég hef líklega séð á Discovery á þeim tíma þegar ég gat ekki sofið á næturnar. það var mynd um geðklofa. Ég man að mér fannst svo magnað að það eru til dæmi þess að manneskja geti hreinlega lifað tvöföldu lífi. Einn persónuleikinn er við völdin á daginn og hinn persónuleikinn er við völdin á nóttunni. Þótt líkami geðklofans fái einungis nokkurra mínútna svefn á hverjum sólarhring þá virtist víkjandi persónan sofa á meðan "hin" persónan var við völd og vaknaði svo næsta morgun actually úthvíld.
Þar sem ég hafði lögfræðing við höndina í dag varð ég að spyrja hvort svona geðklofi gæti verið tveir lögaðilar. Þ.e. haft tvær kennitölur og lifað fullkomlega aðskildu tvöföldu lífi með vitneskju um "hinn" aðilann. Veit einhver um dæmi þess að geðklofi hafi framið morð en verið sýknaður vegna þess að "aðal" persóna viðkomandi framdi ekki morðið heldur sjúk "auka" persóna?
Hvað ætlaði ég að blogga um meira... Já.. alveg rétt. Ég þoli ekki að þegar maður fer í svona detox þá fær maður bólur út um allt. Ég er með eina á enninu sem er svo stór að hún er eins og Orlan sem hún Þórdís var að spá í um daginn. Eh.. ég er svona eins og Orlan - the early days. Sé að hún hefur bætt heldur betur við síðan ég sá hana síðast. Ég er bara með horn hægra megin á enninu. Já og ég er með bólu á bringunni. Það pirrar mig alveg ósegjanlega mikið.
Ég er reyndar búin að vera dugleg að þrífa mig með öllum hreinsivörunum sem Júlía svínbeygði mig til að kaupa og hún Júlía segir að það sé eðlilegt að steypast svona út í bólum þegar maður byrjar að þrífa á sér húðina eins og á að þrífa hana.
Aumingja þeir sem eiga ekki Júlíu fyrir systur. Húðin á þeim hlýtur að vera hræðileg.
Já.. og ég mótmæli ummælum Júlíu frá því um daginn. Ég bauð henni að setja upp útlit í Fireworks sem ég ætlaði að setja á bloggið hennar en hún kaus að þrífa eldhúsið mitt og passa börnin mín í staðinn. Hvernig getur hún ætlast til þess að ég geri nokkuð þegar hún gefur mér ekkert til að vinna með? Ha? Júlía? Ég bara spyr?
Eh.. æi.. .tek þetta til baka. Allavega þangað til hún er búin að segja mér hvað ég á að gera við bláa vökvann í sandblásna glasinu...