www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Hver myrti Pál með antík plastsverðinu?
Mánudagur, 09. febrúar 2004

Það var vinahópur hjá Jóhönnu í kvöld. Ætlunin var að fara með hópinn í vinnuna hjá mér og sýna þeim "Internetið" en þar sem Doddi er lasin varð ekki af því. Júlía kom í heimsókn seinnipartinn og okkur datt í hug að hafa morðgátu fyrir blessuð börnin. Við settumst strax niður við skriftir.

Doddi var fórnarlambið (Páll) þar sem hann var hálf slappur hvort eð er. Hinir sem mættu á svæðið drógu miða með þeirri persónu sem þeir áttu að vera. -Nema Tóti.. honum var "úthlutað" löggu hlutverkinu.

Persónurnar í morðgátunni voru:

Soffía:

Þú átt fullt af peningum og þú ert gift Páli. Þú þolir Pál ekki og vilt losa þig við hann en átt erfitt með það vegna þess að Páll komst í bankahólfið ykkar og reif kaupmálann sem þið gerðuð fyrir brúðkaupið. Það þýðir að Páll fær helminginn af öllu sem þú átt ef þú skilur við hann og það viltu ekki.

Það er ekkert annað að gera í stöðunni.. en að drepa hann.
(Nú má ekki gleyma því að þetta er leikur. Auðvitað er aldrei rétt að drepa fólk þessar aðstæður né aðrar.)

Þú ert sumsé morðinginn. Þegar ljósið er slökkt þá drepur þú Pál með antík plastsverði sem hangir á veggnum.
Þú reynir að koma sökinni yfir á stjúpdóttur þína, Ellu, sem þú þolir ekki. Ella er fordekruð og spillt og þú veist að Páll hefur hótað að taka Ellu út úr erfðarskránni og hún hótaði að drepa hann fyrir það.

Ella:

Þú ert dóttir Páls og stjúpdóttir Soffíu. Þú þolir hvorugt þeirra. Þú ert fordekruð og óþolandi frekjudós. Þú eyðir peningum eins og þér sé borgað fyrir að eyða þeim og pabbi þinn (Páll) er búin að fá nóg af þér. Nýlega reifstu við hann því hann er hættur að láta þig fá peninga og í þessu rifrildi hótaði hann að taka þig út úr erfðarskránni. Þú sagðist ætla að drepa hann.
Clue: Þú veist að Páll sveik Ólöfu, systur sína, um arfinn sinn þegar foreldrar þeirra dóu og að hann hefur ekki borgað henni krónu til baka þrátt fyrir að hann sé ríkasti maðurinn í bænum, þökk sé peningum Soffíu. Þú ert viss um að Ólöf sé að koma fram hefndum og hafi myrt Pál.

Rúfus:

Þú ert smákrimmi og kærasti Ellu. Þú hatar Pál, enda er Páll búinn að láta reka þig af sex vinnustöðum og hann er að vinna í að láta bera þig út úr leiguíbúðinni sem þú ert í núna; Skókassa með aðgang að klósetti. Páll þolir þig ekki því honum finnst þú ekki samboðinn Ellu, þótt hún sé óþolandi sjálf.

Clue: Þernan var einu sinni kærastan þín og þig grunar að hún hafi drepið Pál því hún er laundóttir hans og hatar að hann hafi aldrei gert það opinbert svo hún megi njóta sömu allsnægta og Ella.

Þernan:

Þú ert laundóttir Páls og hatar hann því hann veit af þér en hefur aldrei viljað viðurkenna að þú sért dóttir hans. Þú vinnur á heimili hans og Soffíu og horfir á þau velta sér upp úr peningum og munaði.

Clue: Þig grunar að Rúfus, kærastinn hennar Ellu (og þinn fyrrverandi), hafi myrt Pál vegna þess að Páll er búin að gera Rúfusi mjög erfitt að fá vinnu í bænum og honum finnst Rúfus ekki vera Ellu samboðinn.

Ólöf:

Þú ert systir Páls. Hann sveik af þér arf foreldra ykkar og notaði peningana til að komast inn hjá yfirstéttaliði bæjarins þar sem hann kynntist Soffíu. Þú hatar Pál af öllu hjarta og hefur aldrei fyrirgefið honum svikin auk þess sem þú öfundar hann af velgengninni og ert svekkt út í sjálfa þig fyrir að hafa aldrei heimtað réttlæti af Páli.

Clue: Þig grunar að Ella hafi loks misst endanlega stjórn á sér eftir síðasta rifrildið sem þú heyrðir hana eiga við pabba sinn (Pál). Þú heyrðir hana hóta að drepa hann þegar hann sagði henni að hann ætlaði að gera hana arflausa ef hún hætti ekki að hitta Rúfus.

Löggan:

Þú ert löggan. Hlutverk þitt í leiknum er að komast að því hver morðinginn er.
Þú átt í höggi við Soffíu, eiginkonu hins myrta.
Ellu, dóttur hins myrta og Rúfus, kærasta hennar.
Einnig er á staðnum Þerna þeirra hjóna og Ólöf, systir Páls.

Soffía er rík en nísk. Allir sem þekkja til vita að hún er orðin þreytt á Páli en allir vita líka að þau gerðu kaupmála þegar þau giftu sig svo Soffía gæti skilið við hann og verið laus allra mála. Af hverju er Soffía ennþá gift Páli?

Ella er óþolandi gerpi, á allt of mikla peninga og frítíma. Þú veist ekki mikið um hana annað en að hún hefur brugðist föður sínum, nennir ekki að mennta sig og hangir með einhverju pakki.

Rúfus er kærasti Ellu, góðkunningi lögreglunnar. Hann er besta grey en verður óður með víni og algerlega óútreiknanlegur.

Ólöf er systir Páls. Hana þekkir þú ekki mikið, enda býr hún ekki í bænum. Hún virðist bitur kona.

Þernuna þekkir þú líka ekkert. Hún virðist meinlaus við fyrstu sýn.

Tóti var löggann og komst að því þegar hann kom heim með pizzurnar. Ég var þernan því einn meðlimur vinahópsins komst ekki og Júlía var stjórnandi leiksins. Það er óhætt að segja að við skemmtum okkur konunglega og frábært hvað hver og einn tók hlutverk sitt alvarlega og túlkaði af mikilli snilld. Það voru samt nokkrir hnökrar á plottinu.. því við Júlía vorum svo uppteknar af því að láta alla gruna alla.. að við gleymdum að láta einhvern gruna Soffíu, sumsé hin sanna morðingja. Það reddaðist hinsvegar þegar Löggann spurði út í kaupmálann. Oh.. hrikalega skemmtilegt að skrifa svona sápuóperu. Já.. og svo lærðu börnin hvað kaupmáli er og hvað það getur verið mikilvægt að vera með svoleiðis. Segið svo ekki að þetta sé ekki gagnlegt og fræðandi! Þau voru líka sniðug að bæta við hlutverkin sín og á tímabili varð þetta hreinn spuni og krakkarnir fóru á kostum.

Þegar morðinginn var fundinn fórum við að spila Hættuspilið og ég skemmti mér konunglega við að skoða öll sponsin sem þeir hafa fengið á þetta spil. Vinahópurinn var búinn klukkan níu.

Ahhh... ég lofaði krökkunum að hafa aftur vinahóp (með þessum vinahóp) og hafa aftur morðgátu. Ég hlakka ekkert smá til! Í henni verður skiptineminn Marumbi sem kemur frá Namibíu.. er ekki búin að ákveða meira.


| anna | 21:17 |
comments

En hvað þú ert skemmtileg mamma thumb up

Nr. 1 | posted by: Ása | 10.02.2004 | 12:29:16 | [+] |

Hverjum öðrum hefði dottið þetta í hug? thumb up

Nr. 2 | posted by: Harpa | 10.02.2004 | 22:26:15 | [+] |

Ég veit ekki afhverju mér datt í hug þessi martraðar saga þegar ég las morðgátuna þína. En hvað með það. Skelli henni samt inn.

STAL SOKKUM Í BLÁA LÓNINU

Mig hefur dreymt forsíðu DV með þessari fyrirsögn undanfarnar nætur eftir saklausa baðferð í Bláa lónið einn fimmtudagseftirmiðdag í kuldakastinu um daginn. Það er kannski ekki í frásögur færandi en hluti af starfsskyldum mínum eru einmitt sundsprettur í Bláa lóninu. Í fljótu bragði virðist þetta mjög spennandi í augum þeirra sem sjaldnar fara í Bláa lónið. En ég get fullvissað þá hina sömu um að svo er ekki. Þetta er erfið vinna, ekki ósvipað álag og lagt er á stjórnmálamennina þegar þeir þurfa að mæta erlendis á fundi í Norðurlandaráði. Þessi fimmtudagseftirmiðdagur var engin undantekning en þá var minnst 12 gráðu frost og 17 metrar á sekúndu þannig að maður maraði í hálfu kafi meira og minna allan tímann, ef maður vildi halda höfðinu. Skiljanlegt þegar maður er með greiðslu eins Hallgrímur Helgason.

En martröðin kemur ekki til af kuldanum, nema kannski óbeint, heldur Illuga. Illuga á DV. Málið er að hann hikar ekki við að birta nöfn þeirra sem brjóta af sér - eða talið er að hafi brotið af sér - eða ætla að brjóta af sér - eða brutu hugsanlega af sér án þess að hafa ætlað sér það en voru kannski ruglaðir í ríminu sökum kulda.

Well. Málið er að þegar ég er að klæða mig í sokkana, eftir sundið að sjálfsögðu, sest ég á bekk og færi mig í fyrri sokk og síðan í þann seinni - svona eins og flestir gera. Þá lít ég niður og sé þriðja sokkinn á gólfinu. Nú voru góð ráð dýr. Þarna sat ég kviknakinn og búinn að stela notuðum sokk. Ekki mjög gott til afspurnar. Ég lít leiftursnöggt í kringum mig, aftur á gólfið og sé að undir bekknum sem ég sit á eru skór með einum sokk. Gátan leyst. Ég hafði, sökum vosbúðar og kulda, seilst í annan skóinn og tekið einn sokkinn og dregið á fótinn. Með hryllingi (ekkert er verra en að vera komin í annarra manna sokk) dreg ég sokkinn af fætinum og skila honum í skóinn og fer í rétta sokkinn.

En þá aftur að martröðinni. Mig dreymir ítrekað, að sést hafi til mín, upplýsingum lekið í DV og að Illugi taki við mig viðtal og ég reyni af veikum mætti að útskýra hvernig standi á því að ég sé í sokkum annars manns. En það er ekki til neins og ég vakna upp við að forsíða DV rennur yfir sviðið með fyrirsögninni "STAL SOKKUM Í BLÁA LÓNINU" og undir hljómar Björgvin Halldórsson og syngur: ÉG LAS ÞAÐ Í ...

"Ég sagði víst flest það, en þegar þú lest það, þá virkar það alveg fatalt. Sem barnaleg þvæla, tóm vitleysa og stælar, en samt sagði ég þeim þetta víst allt. En ég er ei svona, það ætla ég að vona, ég meinti það allt saman vel. Þeir spurðu mig frétta. Ég sagði allt af létta. Mitt mannorð er brotið í mér."

Mórall sögunnar er sá að forvarnargildi nafnbirtingarstefnu DV er mikið því ég er hættur að ganga í sokkum.

Nr. 3 | posted by: igor | 11.02.2004 | 0:13:43 | [+] |

LESTU BLOGGIÐ MITT ANNA!

ANNA!?

LESTU BLOGGIÐ MITT!

HEYRIRU Í MÉR?

ertu farin að sofa?

Nr. 4 | posted by: júlía | 12.02.2004 | 0:40:33 | [+] |

Þetta er frábært! Ég er einmitt með gelgjuafmæli í lok´mánaðar hehehe. Annars var ég með partý snemma á síðasta ári þar sem var framið morð og 12 matargestir sem voru hjá okkur hjónunum urðu að leysa þá morðgátu. Allir mættu í búningum og lifðu sig vel inn í hlutverkin - svo ég tali nú ekki um þegar fjórðu og fimmtu borðvínsflöskurnar voru opnaðar. Flestir fengu sér meira að segja fleiri en einn fordrykk!! Já það er nú ekki á hverjum degi sem maður fær að vera heimsfræg kvikmyndastjarna með vafasama fortíð og hafa knúsað alla aðalsjarmörana á svæðinu. Flottasta vinnuparty sem ég hef farið í.....

Nr. 5 | posted by: edda | 12.02.2004 | 18:54:56 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web