www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Djamm með jet settinu
Sunnudagur, 15. febrúar 2004

Komst að því í gærkvöldi að það voru kannski mistök að henda nánast öllum fötunum mínum um daginn. Var nefnilega í vandræðum með að finna föt í gær fyrir Norðurljósa-bash-ið á Nordica. Þetta reddaðist nú samt alveg. -Fyrir horn a.m.k.

Júlía systir kom að passa krakkana og við Tóti drifum okkur út um klukkan átta. Byrjuðum á því að fara í partý hjá vinnufélögum Tóta og svo var haldið á Nordica um klukkan hálf tíu.

Þegar þangað var komið réðist á okkur kona með rós á teygju sem hún vildi að ég setti á hendina á mér og svo setti hún fegurðarblett á kinnina á mér. Það er ekkert miðað við hvað hún gerði við Tóta.. hún teiknaði á hann skegg, sem reyndar fór honum rosalega vel. Það var eitthvað mexíkó þema í gangi.

Það varð ljóst mjög snemma eftir að við komum á Nordica að Tóti veður í smápíum, þ.e. á meðan þær héldu að hann væri "einn". Ég komst hinsvegar að því að ég er smápíu-repellant. Enn einn hæfileikinn sem mér var ekki kunnugt um. Það væri nú ráð að athuga hvort ég get komið þessu á flöskur og selt því ég held að það sé stór markaður giftra kvenna sem myndu kaupa svona repellant.

Það var ömurlegt veður í gærkvöldi og allir í vinnu-partýinu hálf sloj eitthvað. Það skánaði ekki þegar við mættum á Nordica. Sérstaklega ekki þar sem bjórinn var búinn og það sem var eftir var rauðvín, sem mér skildist að væri vont, og hvítvín sem ég veit ekkert hvernig smakkaðist.

Við Tóti beiluðum rétt fyrir miðnætti.

Það sem mér fannst lang áhugaverðast við þessa samkomu var lýsingin. Það litu bókstaflega allir rosalega vel út. Ef lýsingin væri svona allstaðar.. þá væru allir fallegir.. alltaf. Kannski er þetta eitthvað sjónvarps trikk.

Þegar við komum heim var Júlía systir búin að taka til í eldhúsinu og átti í þokkabót pizzuleifar fyrir svanga Nordica fara. Ekki léleg barnapía það!

Ég sofnaði seint og um síðir því ég er hrædd í miklu roki. Man ekki hvort ég er búin að blogga um af hverju ég er hrædd í roki.. kannski á ég það eftir.
Tóti var samt voða góður við mig og hélt fast utan um mig og passaði mig alveg þangað til ég sofnaði.

Já.. verð að minnast á.. að það er magnað að ég skuli hafa verið innan um allt þetta fræga fólk.. því ég sá engan frægan þarna inni. Tóti er orðin þvílíkt frústreraður á mér því ég bara sé ekki frægt fólk. En hans definition af frægð er ekki alveg eins og mín. T.d. spurði hann mig hvort ég hefði séð Tinnu Marínu og ég sagði nei, sem er sannleikanum samkvæmt. Þá sagði hann að ég væri nú alveg vonlaus því ég sæi aldrei neinn frægann. Ég spurði til baka: "Er Tinna Marína fræg?" Ég spyr í alvöru og no pun intended. Er Tinna Marína fræg? Hún var keppandi í Idol. That's all.

Það getur verið að það þurfi að endurstilla frægðar mælikvarðan í mér til að hann samræmist íslensku þjóðfélagi. Ég tók mér pásu og hugsaði um hver mér finnst vera frægur og eina íslenska manneskjan sem mér dettur í hug er Björk.


| anna | 12:16 |
comments

Come on, maður gefur nú olnbogaskot fyrir minna en Björk! En Tinna Marína er svona frekar has-been heldur en fræg (ja, nema hún geri eitthvað í nálægri framtíð til að viðhalda athyglinni)

Nr. 1 | posted by: Atviksorða-Anna | 15.02.2004 | 12:52:49 | [+] |

Kona kaninkunnar var þarna.

Hún er fræg.

A.m.k. á mínu heimili.

Nr. 2 | posted by: pallih | 16.02.2004 | 15:11:01 | [+] |

Sennilega hefur allt ríka og fræga fólkið verið í þynku heima hjá sér á laugardagskvöldið eftir kokteilinn á föstudagskvöld hjá Jóni Steinari Gunnlaugssyni þotuliðslögfræðings. Maðurinn minn var staddur þar og fékk athygli fyrir það eitt að vera non-frægur. Enda þekkti hann alla gestina úr Mogganum og Séð og heyrt jahh nema sjálfan sig - enda aldrei birst í neinu blaði eða sjónvarpi!

Er Björk fræg?
nerdy

Nr. 3 | posted by: edda | 16.02.2004 | 18:39:22 | [+] |

Á ég að trúa því að þetta lið sé svo handónýtt að það þoli ekki tvö djammkvöld í röð? what

Nei.. ég kaupi það ekki.

Nr. 4 | posted by: anna | 18.02.2004 | 20:31:31 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web