All work and no play...
Föstudagur, 20. febrúar 2004
...makes Casper a friendly ghost.
Bara smá einkahúmor...
Jack ætti ekki að vera dull boy anymore því við fórum í bíó áðan að sjá Gothica. Já það er magnað því fyrir u.þ.b. þremur mánuðum sá ég trailer úr þessari mynd og ákvað að mig langaði að sjá hana. Ég er ekkert smá fegin gagnrýni sem ég las einhverstaðar um daginn þar sem gagnrýnandinn sagði að þetta væri áferðafalleg mynd, fagmannleg en fyrirsjáanleg og hálfgerð klisja. Góð fyrir hlé en ömurð eftir hlé. Þökk sé þessum ágæta manni fannst mér myndin bara nokkuð góð, enda var ég orðin sannfærð um að hún væri fullkomið crap. Svona er hægt að manipulera sjálfan sig með því einu að minnka væntingarnar.
Þegar það kom hlé í bíó sat ég í sætinu mínu poll róleg. Fattaði svo þegar hléið var búið að mig hefði átt að langa í sígarettu þegar hléið byrjaði. Það eru svona default viðbrögð við hléi í bíó, en í kvöld kom ekkert. Engin löngun. Engin söknuður. Ég þurfti ekki einu sinni að fá mér Extra tyggjó. Djöfull er það dásamleg tilfinning. Ætli það geti verið að ég sé hætt að vera þræll?
Ég er samt ekki farin að hrósa sigri því þetta er auðvelt. Allt of auðvelt. -Og ég myndi vita það.. þetta er tilraun 684 til að hætta!
Fyrir þá sem eru að spá í að hætta þá finnst mér rétt að benda á "Stop smoking humor" galleríið. Minn all time favorite er þessi hér.
Hvað um það.. ég er nýkomin upp úr baði og má ekki vera að þessu. Þarf að naglalakka á mér tærnar...