Laugardagur, 17. janúar 2004
Kalli B vann.. kom ekki á óvart.. Jón var í öðru sæti.. kom ekki á óvart... það sem kom á óvart var að Anna Katrín væri ennþá að missa röddina.
Annars fannst mér þau öll taka asnaleg lög í kvöld. Anna Katrín tók Imagine og mér fannst það ekki "fara henni" vel. Kalli tók Mustang Sally.. þegar ég var að vona að hann tæki "Try A Little Tenderness" úr sömu mynd. Munurinn á þessum tveimur lögum er gífulegur. Mustang sally er sama stefið út í gegn en Tenderness hefur stíganda sem hefði boðið upp á brilliant finale hjá Kalla því ég efast ekki um að hann geti valdið því. Hann hefði unnið með 75% atkvæða hefði hann tekið það lag vel, auk þess.. hann hefur sungið Mustang Sally áður í söngvakeppni og lenti í 2. sæti. Jón tók Words með Gibb bræðrum. OK.. ég er alfarið á móti því að fólk reyni að taka GibbaGibb bræður því það er nánast ógerningur. Jón komst þokkalega frá sínu en af þessum þremur finnst mér hann lakasti söngvarinn. Það skiptir svosem ekki máli á tímum emplifæera og mixera. Sjáið bara Rick Ashley!
Anna Katrín var glæsileg í kvöld, Kalli B var flottur í jakkanum ógurlega en Jón var lúðalegur og leit út fyrir að vera á leiðinni í útilegu. Maður skyldi ekki gera grín af gardínum sem eru endurunnar sem fatnaður. Ég hef t.d. sjálf saumað mér brjálaðan kjól úr gardínum sem ég fann í kassa hjá fyrrverandi vinnuveitanda mínum og ég var tvisvar spurð kvöldið sem ég var í kjólnum hvar ég hefði keypt gripinn. 60's gardínur eiga eftirlíf! Ég gat hinsvegar bara skartað þeim kjól eitt kvöld því hann var svo þröngur að daginn eftir fékk ég mér smá snakk og þá var hann orðin of lítill. Gardínur eru nefnilega oft ekki úr teygjuefni... því miður.
Ég og Jóhanna fórum í brjálað Idol partý hjá Júlíu systur, heima hjá mömmu, en þegar Idol var búið lagðist Júlía í pest og af ótta við smit drifum við Jóhanna okkur heim í brjálaðri færð. Komumst á leiðarenda óskaddaðar og ég vona að Júlía lifi nóttina af.
Ef hún lifir ekki af á ég hinsvegar upptöku af fjölskyldu-Idol keppninni sem við settum á svið í hverju auglýsingahléi. Já.. og ef hún lifir... then I got her by the balls!
MÚHOHOHOHO
Annars var ég lang verst í þessari keppni og það var aðallega klæðnaðurinn sem var gjörsamlega appalling! Ég var klædd ullarnærfötum og þykkri peysu. Not my finest hour.. og svo drulla ég yfir Jón.. sem gæti kallast Mr. World miðað við útganginn á mér!
Ah... ég var ekki í Smáralind.. í því liggur munurinn.