Mánudagur, 12. janúar 2004
Ég á bágt og mikið af því. Þetta vita þeir sem þekkja mig vel. Samt.. ég á ekki eins mikið af því og ég átti þegar ég var yngri.. verð stöðugt ríkari af "I don't give a shit" með árunum - sem er vel.
En eitt er það sem hefur angrað mig óstjórnlega mikið undanfarið og það er framsetning mynda á badabing.is. Hér er dæmi um það sem fer illa í pirrurnar á mér. Það er ekki myndefnið sjálft.. nei, enda bara flott pía sem um ræðir... ég vil hafa ramma í kringum myndina, sérstaklega þar sem bakgrunnurinn er nánast hvítur og bakgrunnurinn á badabing.is er ekki hvítur.
OK.. ég var búin að taka fram að ég ætti bágt!
Allavega.. þetta pirraði mig svo mikið að ég tók mig til og bjó til skipun í CSS sem bæði lætur myndina fara til hægri, býr til 10 px border til vinstri við hana (þoli ekki þegar textinn er alveg uppað myndinni) OG kenndi Tóta að velja 1 í border. Mér líður svo miklu, miklu betur.
Tóta líður líka miklu, miklu betur þótt umhverfis og stíl-blindur sé. Það liggur í augum uppi að þegar ég hætti að kvarta yfir border leysi myndanna á síðunni hans hlýtur honum að líða betur. Ég kann að röfla þegar ég tek mig til!
Þegar ég var búin að finna lausn á þessu "vandamáli" setti ég upp málaratrönurnar sem ég fékk í jólagjöf og festi striga í ramma í þær. Náði mér þvínæst í kol og teiknaði mynd - sem ég mun svo mála þegar ég hef tíma.
Sjís hvað mér finnst þetta gaman! Ég vildi óska að ég hefði haft rænu á að teikna út í hið óendanlega sem krakki og unglingur í stað þess að drekka frá mér ráð og rænu allar helgar.. þá hefði ég kannski endað í listaháskólanum og ætti möguleika á að lifa af málaralistinni.
hehehe
Ég á víst meiri möguleika á að vinna í Happadrætti Háskólans...