www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Salvatore í myndavélinni MINNI!
Mánudagur, 26. janúar 2004

Ég tók myndir af Dodda í dag í baði þar sem hann var að sýna mér hvað hann væri orðin duglegur að kafa. Hann er sko farinn að æfa sund með KR og honum finnst það ekki leiðinlegt.

SalvatoreRétt í þessu var ég að ná í myndirnar af digital myndavélinni minni en það var bara eitt sem ég skildi ekki... Hvernig komst aðalpersóna myndarinnar Cinema Paradiso í myndavélina mína? Já.. ég er að tala um Toto.. Salvatore hin fullorðna. Þann sem hafði sagt skilið við alla sem hann elskaði til að lifa drauminn sinn.. þann sem kom heim og horfði á alla kossana sem klikkaði presturinn hafði klippt úr bíómyndunum..

Anna: Ó MÆ GOD! TÓTÓ Í VÉLINNI MINNI! HVAÐ ER AÐ GERAST? MIG SVIMAR!
Tóti: Já.. leikstjóri myndarinnar sem við horfðum á um daginn og ég tók viðtal við... þetta er hann. Hann lék í Cinema Paradiso. Ég fékk ekki ljósmyndara svo ég tók bara vélina og smellti af honum nokkrum myndum, var það ekki í lagi?
Anna: Var það ekki í lagi? Var það ekki í lagi?? Ég er bara búin að gráta með þessum manni í lokasenunni fimm hundruð sinnum.. er hann leikstjóri andamyndarinnar?
Tóti: Já
Anna: GODDEM! Oh.. það sem ég hefði gefið fyrir að hitta hann... Oh...
Tóti: Já, hann er helvíti skemmtilegur náungi.
Anna: OK. Viltu bara ekki ganga hreint til verks og ná þér í dúkahníf og stinga mig í augað? Snúa hnífnum í sárinu will you?

-Nei þetta síðasta var aldrei sagt og ég bæti því nú bara hér inní fyrir dramatík.. en þetta fékk mig til að hugsa. Ef mér byðist að fara í mat annaðhvort hjá Jude Law eða Jacques Perrin þá myndi ég velja Jacques.

Af hverju?

Nú.. Perrin, fyrir það fyrsta, er áhugavert nafn...

Oj hvað ég er vond...

Nei. Jacques er bara flottari og Jude Law hefur aldrei leikið hlutverk sem hefur fengið mig til að gráta. Ég veit, ég veit að þetta er ekki Salvatore.. en samt... Æi.. hvað haldiði að ég myndi nenna að sitja og hlusta á Jude röfla út af skilnaðnum og einhverju rugli.. langar miklu frekar að hitta Perrin og tala um endur.

Djöfull.. bara við það að lesa þessa færslu átta ég mig á því að það er langt þangað til ég get hætt hjá sálfræðingi...


| anna | 0:10 |
comments

Maður á auðvitað ekki að viðurkenna svona, en Cinema Paradiso er sennilega eina myndin sem ég hef tárast yfir þegar ég sá hana fyrst.

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 26.01.2004 | 3:05:42 | [+] |

Passar ekki við töffaraímyndina - en sennilega er sú ímynd bara mín eigin tálsýn, á engan svartan leðurjakka jú sí.

Nr. 2 | posted by: AlanHudson | 27.01.2004 | 0:51:46 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web