Óvæntar niðurstöður.
Miðvikudagur, 28. janúar 2004
Af þeim 48 sem svöruðu spurningunni:
"Hvar finnst þér best að kúka? (ef við gefum okkur að klósett sé fyrir hendi)"
Finnst aðeins einni manneskju best að kúka í almenningsklósett.
Þrettán finnst best að kúka heima.
Átján finnst best að kúka þegar þeir eru einir heima.
Engum finnst gott að kúka heima hjá vinum sínum.
(greinilegt að þeir sem lesa síðuna mína eru sannir vinir vina sinna)
Tveir kjósa helst að kúka hjá ættingjum sínum.
Engum finnst gott að kúka í verslunarmiðstöðum en áhugaverðast af öllu er...
að fjórtán af þeim fjörutíu og átta sem kusu kúka bara alls ekki!
Þetta þykir mér merkilegt og finnst ástæða til að kanna þetta nánar. Það eru greinilega mjög háþróaðri einstaklingar í Íslensku þjóðfélagi. Ekki er ég svona fullkomin... Rats!
Harpa: Ég fór í bað klukkan sjö.. ætlaði svo aðeins að hvíla mig á eftir uppí rúmi.. vaknaði svo bara í morgun.. En... ÉG KOMST INN!