Laugardagur, 31. janúar 2004
Og ég var viðstödd.
Nú má ekki gleyma því að ég fer sjaldan út, nema þá út á bensínstöð eins og fyrri færsla mín ber augljós merki.. en ég skemmti mér konunglega í kvöld. Dansaði við diskó og spjallaði við skemmtilegt fólk.
Eftir kvöldið í kvöld mun linkum á aðra bloggara fjölga um tvo.. því bloggari dauðans er hættur að blogga.. og ég mun því ekki linka á hann. Sem minnir mig á að ég gleymdi að segja honum soldið.. helv. rassgat!
Ármann er ferlega skemmtilegur. Ég, Ármann og fleiri kvöldumst á meðan Viðar Eggertsson las tvo kafla úr óútkominni bók eftir.. eh.. best að segja sem minnst um það. Ég er alveg á móti svona upplestrum, eins og Ármann, og þegar okkur fannst lítið bera á létum við okkur hverfa. Ekki ósvipað og Burt í löðri gerði forðum. Hittumst á barnum. Nice move.
Þór er öðlingur og nokkuð góður dansari verð ég að segja. Þökk sé honum og afmælisveislunni hans hef ég áttað mig á því að ég fer ekki nógu oft út á lífið. Ég myndi missa a.m.k. 5 kg bara í dans ef ég hefði rænu á að stunda djammið. Ég hitti ferlega hressa stelpu sem heitir Hugrún sem sagði mér að ég væri feit og ljót og eitthvað fleira óhuggulegt. Greinilega ekki með gleraugun. Common! Ég eyddi heilum tuttugu mínútum í að græja mig fyrir kvöldið! Annars tók þessum athugasemdum með miklu jafnaðargeði enda þekkt rósemismanneskja. Hugrún reyndist svo hin besti dansfélagi og þokkalega liðtæk í diskóinu! Það er reyndar alfarið henni að þakka að ég dansaði í kvöld, ekki dansar Tóti, svo mikið er víst.
Ég hitti líka bloggarann Hel og þegar við kvöddumst sagði hún "við linkumst á, á morgun!". Ekki spurning. Hel er flott stelpa. Gaman að hitta aðra bloggara. Skandall kvöldsins er að ég fann ekki hreinan Vanilla Sky bol svo ég varð að fara í öðrum, ómerktum bol...
Ungur maður söng fyrir mig lagið From Russia With Love, hvað sem það nú þýðir og líka Fly Me To The Moon. Þráinn: Þú ert með þrusu rödd og ég vona að þú hafir fundið gleraugun þín. Þráinn þefaði líka af mér eins og hann væri api og sagði að ég lyktaði vel. Mér finnst það nú töluvert afrek þar sem ég reyki og Þráinn reykir ekki. Nema hann sé nikótínfíkill on the rebound..
Kanínkan spurði mig hvort ég væri flúruð. Nei, ég er ekki flúruð. Mér er illa við tattoo. Þau eru of permanent eitthvað. Ég held hinsvegar að Kanínkan sé búin að finna sér helvíti fína konu. Vonandi að Tigger haldi í hana. Já.. ég fékk prik hjá Tigger fyrir að fatta flúrið hans. Ég hef gleymt fattaranum á on.
Afmælisveislan var haldin á Þjóðleikhúskjallaranum og sjís... finnið nýjan DJ! Gæinn var ekki að gera góða hluti nema topps fimmta hvert lag. Og að geta ekki einu sinni lesið dansgólfið? Common.. hvað þýðir það þegar dansgólfið tæmist? Hann átti samt ágætis sprett þarna fyrst.
Annars er svo langt síðan við Tóti höfum farið út á lífið að við ætluðum ekki að rata á rétta innganginn í Þjóðleikhúskjallarann. Glatað lið auðvitað. Hringjandi í elsta barnið og spyrja hvort við megum vera aðeins lengur... sjís...
Ég er hinsvegar somewhat in heat og ætla að setja lady marmalade á fóninn og fara í háu stígvélin, já Palli.. þau, ná í handjárnin og svipuna og...
MÚHOHOHOHO
Ef Tóti vill frekar lesa DV er ég farin aftur út á lífið....