Þriðjudagur, 06. janúar 2004
Ekki allt jafn fallegt...
Ég keypti mér síma um daginn. Ekkert nema gott um það að segja. Keypti mér kapal til að geta búið til funky hringitóna og hlaðið myndum í símann. Ekkert nema gott um það að segja... allavega ekki eftir að ég fékk helvítis kapalinn til að virka sem gerðist einmitt í kvöld.
Ég er búin að reyta hár mitt og skegg öðru hvoru fyrir framan tölvuna við að reyna að fá helvítis kapalinn til að virka síðan á Þorláksmessu því þá fékk ég pakka í pósti frá seljanda á ebay. Þrír frontar, þrjár plast töskur og einn kapall. Fjögur þúsund kall cash. Verð að segja að þetta eru bara helv. góð kaup miðað við að kapallinn kostar hér á landi tæpar 8 þúsund og hver frontur 2.200!
Já ég er tækjafrík. Ég vil geta skipt um front, ég vil geta skipt um myndir, ég vil geta skipt um hringitóna og það vill þannig til að það sem ég vil hafa í símanum mínum fæst ekki hjá Ogvodafone, Landssímanum eða á mbl.is. Ég hef allt of miklar sérþarfir, auk þess sem úrvalið af skemmtilegu uplódi hjá Ogvodafone er til háborinnar skammar, ótrúlegt að unglinga-risinn Tal sé einn af uppistöðum þessa fyrirtækis.
En ég er ennþá viðskiptavinur Tals. Því miður. Ég er "roaming user".
Það veldur því að ég get ekki náð í blankó operator logo í símann svo það er alveg sama hvað ég uplóda flottri mynd í símann minn... það stendur alltaf:
      TAL
Ogvodafone
þvert yfir myndina.
Þar sem ég er smámunasamari en andskotinn hringdi ég í þjónustuver Ogvodafone og spurði af hverju ég gæti ekki náð mér í blankó lógó til að ég geti notið litmyndarinnar af t.d. Jude Law sem ég er búin að setja í símann minn. Lítið var um svör en að lokum var mér sagt að fyrirspurnin mín yrði send áfram til tæknimanns sem myndi svo láta mig vita. Yeah right...
Náttúruleg forvitni mín um það af hverju síminn minn virðist vera dysfunctional að þessu leiti rak mig til að hringja í Hátækni, fyrirtækið sem er með umboðið fyrir Nokia síma á Íslandi. Þar fékk ég svör við öllum þeim spurningunum sem mér datt í hug að spyrja.
Af hverju er himininn blár? Af hverju verða tennurnar í fólki svartar sem drekkur rauðvín? Af hverju er kók í gleri best? Af hverju get ég ekki hlaðið operator lógói í símann minn?
Ég fékk svör.. en öll nema hið síðasta voru í fullum trúnaði svo ég mun ekki birta þau hér. Svarið við síðustu spurningunni er (skrifað eftir minni og takmörkuðum skilningi) að Íslandssími og Tal voru með sitthvort gsm netið. Eftir sameininguna fyrir tæpu ári síðan ætluðu þeir að sameina netin en einhver með butterfingers hefur farið í málið því öll númer sem byrja á 82 (eins og mitt) eru ennþá á Tal netinu.. sem er greinilega ekki "primary" net eða eitthvað í þá áttina og þess vegna heldur síminn minn að ég sé í útlöndum og vill að ég viti at all times hvaða net ég er að nota.
Smáralind hvað? Ég er alltaf í útlöndum.. ég er roaming user.
Þetta er dapurlegt og annoying.
Ég er ekkert rosalega bjartsýn á að þetta verði lagað hjá Ogvodafone í ljósi þess að engin þar innandyra virðist vita að þetta er að, alveg sama þótt ég hafi sagt þeim frá því. Enda.. ætli þeim sé ekki svosem sama þótt ég sé með:
      TAL
Ogvodafone
skrifað klunnalegum stöfum þvert yfir ennið á Dodda.
Þegar ég fór á stúfana til að skoða síma ætlaði ég að kaupa T-eitthvað frá Siemens en hætti við þegar mér var sagt að Siemens símarnir virka illa hjá Ogvodafone. Ég hélt að ég væri gulltryggð með Nokia!
En ég fékk allavega kapalinn til að virka. Búin m.a. að búa til groovie Flying Circus hringitón. Hlaða inn myndum eins og mofo og leika mér með símann minn í allt kvöld. Það er svo gaman að leika sér.
Jæja.. má ekki vera að þessu. Ég þarf að búa til S.O.A.P hringitón sem ég mun láta hringja í hvert sinn sem einhver úr fjölskyldunni hringir í mig...