www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv guestbook
Og hvað segir þú?
Þriðjudagur, 06. janúar 2004

Ekki allt jafn fallegt...


Ég keypti mér síma um daginn. Ekkert nema gott um það að segja. Keypti mér kapal til að geta búið til funky hringitóna og hlaðið myndum í símann. Ekkert nema gott um það að segja... allavega ekki eftir að ég fékk helvítis kapalinn til að virka sem gerðist einmitt í kvöld.

Ég er búin að reyta hár mitt og skegg öðru hvoru fyrir framan tölvuna við að reyna að fá helvítis kapalinn til að virka síðan á Þorláksmessu því þá fékk ég pakka í pósti frá seljanda á ebay. Þrír frontar, þrjár plast töskur og einn kapall. Fjögur þúsund kall cash. Verð að segja að þetta eru bara helv. góð kaup miðað við að kapallinn kostar hér á landi tæpar 8 þúsund og hver frontur 2.200!

Já ég er tækjafrík. Ég vil geta skipt um front, ég vil geta skipt um myndir, ég vil geta skipt um hringitóna og það vill þannig til að það sem ég vil hafa í símanum mínum fæst ekki hjá Ogvodafone, Landssímanum eða á mbl.is. Ég hef allt of miklar sérþarfir, auk þess sem úrvalið af skemmtilegu uplódi hjá Ogvodafone er til háborinnar skammar, ótrúlegt að unglinga-risinn Tal sé einn af uppistöðum þessa fyrirtækis.

En ég er ennþá viðskiptavinur Tals. Því miður. Ég er "roaming user".

Það veldur því að ég get ekki náð í blankó operator logo í símann svo það er alveg sama hvað ég uplóda flottri mynd í símann minn... það stendur alltaf:

      TAL
Ogvodafone

þvert yfir myndina.

Þar sem ég er smámunasamari en andskotinn hringdi ég í þjónustuver Ogvodafone og spurði af hverju ég gæti ekki náð mér í blankó lógó til að ég geti notið litmyndarinnar af t.d. Jude Law sem ég er búin að setja í símann minn. Lítið var um svör en að lokum var mér sagt að fyrirspurnin mín yrði send áfram til tæknimanns sem myndi svo láta mig vita. Yeah right...

Náttúruleg forvitni mín um það af hverju síminn minn virðist vera dysfunctional að þessu leiti rak mig til að hringja í Hátækni, fyrirtækið sem er með umboðið fyrir Nokia síma á Íslandi. Þar fékk ég svör við öllum þeim spurningunum sem mér datt í hug að spyrja.

Af hverju er himininn blár? Af hverju verða tennurnar í fólki svartar sem drekkur rauðvín? Af hverju er kók í gleri best? Af hverju get ég ekki hlaðið operator lógói í símann minn?

Ég fékk svör.. en öll nema hið síðasta voru í fullum trúnaði svo ég mun ekki birta þau hér. Svarið við síðustu spurningunni er (skrifað eftir minni og takmörkuðum skilningi) að Íslandssími og Tal voru með sitthvort gsm netið. Eftir sameininguna fyrir tæpu ári síðan ætluðu þeir að sameina netin en einhver með butterfingers hefur farið í málið því öll númer sem byrja á 82 (eins og mitt) eru ennþá á Tal netinu.. sem er greinilega ekki "primary" net eða eitthvað í þá áttina og þess vegna heldur síminn minn að ég sé í útlöndum og vill að ég viti at all times hvaða net ég er að nota.

Smáralind hvað? Ég er alltaf í útlöndum.. ég er roaming user.
Þetta er dapurlegt og annoying.

Ég er ekkert rosalega bjartsýn á að þetta verði lagað hjá Ogvodafone í ljósi þess að engin þar innandyra virðist vita að þetta er að, alveg sama þótt ég hafi sagt þeim frá því. Enda.. ætli þeim sé ekki svosem sama þótt ég sé með:

      TAL
Ogvodafone

skrifað klunnalegum stöfum þvert yfir ennið á Dodda.

Þegar ég fór á stúfana til að skoða síma ætlaði ég að kaupa T-eitthvað frá Siemens en hætti við þegar mér var sagt að Siemens símarnir virka illa hjá Ogvodafone. Ég hélt að ég væri gulltryggð með Nokia!

En ég fékk allavega kapalinn til að virka. Búin m.a. að búa til groovie Flying Circus hringitón. Hlaða inn myndum eins og mofo og leika mér með símann minn í allt kvöld. Það er svo gaman að leika sér.

Jæja.. má ekki vera að þessu. Ég þarf að búa til S.O.A.P hringitón sem ég mun láta hringja í hvert sinn sem einhver úr fjölskyldunni hringir í mig...


| anna | 0:24 |
comments

Og ég sem hélt að helsti kosturinn við þennan síma hefði verið að hann er/var bleikur. Maður á að forðast bleika hluti. Bleikt er veikt eins og skáldið sagði.

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 6.01.2004 | 3:23:54 | [+] |

Tæknin er trunta. Ég skil ekkert í henni, og verð alltaf jafn hissa þegar ég sé commentin mín birtast neðanmáls á síðunni þinni við það eitt að ýta á stóra takkann á lyklaborðinu. Mér hefur verið tjáð að ég stefni í að verða eins og gamalmennin sem hringja alltaf í elsta soninn þegar þarf að skipta um rás í sjónvarpinu. One fine day væri örugglega gott að kynna sér aðeins gang mála í tækniheiminum, en á meðan ég nenni því ekki hleð ég bara niður börnum comme les Afriqains, til að tryggja mig.

Nr. 2 | posted by: Atviksorða-Anna | 6.01.2004 | 15:23:32 | [+] |

Bleikt veikt!!! Þvílík og önnur eins firra... Hvurs konar rugl er þetta nú. HALLÓ sástu ekki leagally blond or what? Allt bleikt er gott, hvort sem það er sími, stílabækur, nærbuxur, kjóll eða bara Jude Law í bleikum jakkafötum. Er einmitt með einn bleikan Ericsson með engu auka, enda get ég tekið undir orð Atviksorða-Önnu "ég hleð bara niður börnum"
Kveðja frá bleiku þriggja dætra mömmunni í Kópavogi

Nr. 3 | posted by: edda | 6.01.2004 | 20:13:38 | [+] |

Það þýðir ekki að kjafta sig útúr þessu edda. Sjáðu bara femínistana.

Nr. 4 | posted by: AlanHudson | 7.01.2004 | 23:43:54 | [+] |

Ég er nú alls ekki að reyna að kjafta mig út úr neinu. Bleikt er bara alveg súper flott. Svo er nokkuð ljóst að það leynist ekki mikill feministi í mér (enda myndu þeir aldrei ganga í bleiku sbr. Andrea Róberts eftir að hún gerðist feministi) enda ákaflega bleik og ástkær eiginkona sem held manni mínum og dætrum ákaflega hreint og fallegt heimili, með tví - þríréttaðan kvölverð á hverju kvöldi og efast aldrei um stöðu mína á heimilinu......... Ok. kannski smá feministi en bara micro (var nefnilega að læra á uppþvottavélina!). Það er bara eitthvað við þetta bleika sem mér finnst mjög sjarmerandi og sexý fyrir stálpaðar stúlkur og svo bara krúttulegt fyrir þessar yngri!
Anna - ég hef nú þekkt þig lengi en ljóðagerð er eitthvað nýtt hjá þér ekki satt? Nú þú stendur þig með stakri prýði - sem og alltaf.
Bleikir kossar og bleik knús af bleika Kópavogsskýinu thumb up

Nr. 5 | posted by: edda | 8.01.2004 | 11:51:11 | [+] |

Bleikt er einfaldlega ekki litur sem maður á að skreyta sig með. Samkvæmt rannsóknum mannfræðingsins Friedrich von Dupont-Crayon þá er uppruna hans að leita í misheppnaðri lögun á rauðri málningu í höfðuðstöðvum svissneskra maóista, seint á 19. öld. Þeir kunnu ekki við að henda lagernum, svo konurnar fengu þetta í jólagjöf árið eftir. Eftirleikinn þekkja allir.
Lífeðlisfræðingar hafa síðan reynt að skýra hví konur eru mun hrifnari af þessum lit en karlar. Nýjustu rannsóknir sýna að greinilegur munur er á Chromatin-X-kínasareversetranscriptasa ensímkerfinu milli kyna. Þetta kerfi er nær óþekkt í körlum, en afar virkt í konum. Það virðist bæla niður ógleði og hrylling sem liturinn annars vekur annars. Það rennir stoðum undir þessar kenningar að Chromatin-X-kínasareversetranscriptasa neikvæðar konur nota aldrei bleikan lit, og sumar ganga reyndar svo langt að afneita tilvist hans.

Nr. 6 | posted by: AlanHudson | 8.01.2004 | 19:00:21 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web