www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ófyrirséður dugnaður
Laugardagur, 10. janúar 2004

Í gærkvöldi bætti ég við heilli færslu í beauty is pain, bætti góðum bloggara í linkasafnið og skýrði hana lopahúfuna því það er það sem hún kallar hárið á sér, sem mér finnst reyndar alveg rosalega flott. Það sér ekki fyrir endan á þessum dugnaði í mér.

Ekki skil ég hvernig mér datt í hug að fara út í að uppfæra funny sounds hjá mér í dag.. en ég gerði það samt.

Er auðvitað ekki búin að því.. en hálfnað er verk þá hafið er.. er það ekki? Þetta var hvort sem er allt á gömlu anna.is síðunni svo ég á þetta tilbúið.. þarf bara að laga formattið að nýju síðunni.

Ég byrjaði á að setja þessi fjögur "general" hljóð inn og svo setti ég inn Mel Brooks. Ég fíla Mel Brooks og hljóðið á síðunni úr The Producers er fyndnasta hljóðið úr öllum hans bíómyndum. Punchlænið er bara snilld.

Skyndilega hefur runnið upp fyrir mér ljós. Ég veit af hverju ég er að uppfæra funny sound (sem heitir sounds í linkunum mínum). Það er af því að ég var að fara yfir með Tóta í gærkvöldi hvað við viljum gera við badabing.is til að gera hana að betri síðu og sé fram á að það verði þónokkur vinna. Finnst ég verða að allavega klára að setja það efni sem ég ætlaði að hafa á minni síðu inn áður en ég ræðst í badabing.is makeover...

Well.. best að setja Ferris Bueller inn.. nú eða The Princess Bride.. eða bæði!


| anna | 17:34 |
comments

Hei frábært, takk Anna. Held að ég verði kölluð lopahúfan hér eftir og það er fínt. Nota reyndar þynnri gerðina þessa dagana en hún er mjög góð líka.
laughing

Nr. 1 | posted by: Þórlaug lopahúfa | 11.01.2004 | 15:09:14 | [+] |

Nr. 2 | posted by: Kristín | 15.01.2004 | 21:14:48 | [+] |

Nr. 3 | posted by: Kristín | 15.01.2004 | 21:14:49 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web