www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Margt smátt.
Laugardagur, 24. janúar 2004

Ég átti einu sinni mann en hann gufaði upp, já hann gufaði upp og ég sá hann ekki meir...


Þegar ég vaknaði í morgun var Tóti farinn í vinnuna. Síðustu helgi var hann að vinna bæði laugardag og sunnudag. Hrmpf!

Ég ætla rétt að vona að hann komi heim fyrir klukkan tvö því í dag er mikilvægur dagur í okkar lífi. Mjög mikilvægur dagur. Það er í dag sem við ætlum að fara með þvottavélina okkar í Sorpu og fá aðra í staðinn (ekki aðra í Sorpu samt). Ég get ekki borið þvottavélina ein, svo það er mikilvægt að hann komi heim. Ég veit að hann var að fara að taka viðtal við franskann leikstjóra í dag og þessvegna horfðum við, fjölskyldan, á myndina: Le Peuple migrateur í gær. Ótrúlega falleg og skemmtileg mynd.

Tóti kann ekki nógu vel á PS2 dvd-ið svo ég startaði myndinni fyrir hann í gær. Komst fljótt að því að við vorum með franskt eintak í höndunum án möguleika á enskum texta. Ég og krakkarnir híuðum á Tóta en hann ákvað að horfa samt. Innan skamms vorum við farin að horfa líka. Enda skiptir engu máli þótt við hefðum ekki skilið bofs af talaða málinu.. það er nánast ekkert talað í þessari mynd.

Að horfa á þessa mynd minnti mig samt á áhugaverða grein sem ég las á netinu á þeim tíma sem serial killers áttu hug minn allann.

"Certainly one could state that, like the serial killer, the trophy hunter plans his killing with considerable care and deliberation. Like the serial killer, he decides well in advance the type of victim--that is, which species he intends to target. Also like the serial killer, the trophy hunter plans with great care where and how the killing will take place--in what area, with what weapon. What the serial killer and trophy hunter also share is a compulsion to collect trophies or souvenirs of their killings. The serial killer retains certain body parts and/or other trophies for much the same reason as the big game hunter mounts the head and antlers taken from his prey...as trophies of the chase," (meira um serial killers)

-þótt gæsaskyttur væru einu hunterarnir sem komu fyrir í þessari mynd... ég hef aldrei séð gæsahaus upp á vegg.

Að lokum finnst mér merkilegt að spurningin í pollinu sem er í gangi núna virðist ótrúlega vinsæl miðað við að ég er að spyrja fólk hvar því finnst best að kúka. Átti ekki von á þessu....


| anna | 11:23 |
comments

Hæ Anna
Ég er ein af þeim sem hef síðuna þína opna at all time og ýti á refresh á tíu mínútna fresti. Mér finnst þú æði og veit að þú kemst á metsölulistann ef þú ákveður að binda bloggið þitt inn
Kveðja Ása, undir áhrifum thumb up

Nr. 1 | posted by: Ása | 24.01.2004 | 23:09:55 | [+] |

Anna mín, það er ekki þar með sagt að við séum að gefa skít í þig! Þetta er bara allt of freistandi subject. En vissiru annars að flugnemar eru spurðir að því á prófi hvort þeir líti ofaní klósettskálina að dumpi loknu? Það þykir víst gáfumerki að gera það laughing

Nr. 2 | posted by: Atviksorða-Anna | 25.01.2004 | 0:15:05 | [+] |

Sæl Ása! Já.. ég er svona stundum á síðunni minni líka.. ég nenni stundum ekki að blogga en langar að lesa hvað ég er að hugsa. Nei ég röfla núna.. er orðin allt of þreytt og held ég sé búin að bræða úr nýju þvottavélinni...

Atviksorða-Anna: Já var það ekki! Ég er mikið gáfumenni og hefði ace-að þetta flugnema próf. Að ég skuli fara að læra landafræði, sögu og annað sem er með hund leiðinlegum prófspurningum er beyond me! Að hugsa sér! Ég er fædd flugmaður!


colgate

Nr. 3 | posted by: anna | 25.01.2004 | 2:41:55 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web