www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Leppalúðar Inc
Föstudagur, 23. janúar 2004

Dagurinn í dag var ánægjulegur. Reyndar hafa flestir vinnudagar undanfarið verið ánægjulegir. Skemmir svo ekki fyrir þegar myndarlegir karlmenn á besta aldri koma á svæðið og fá mann til að sparka í sjálfa sig undir borði fyrir að hafa ekki sett upp andlit um morguninn... MÚHOHOHO -sem gerist sjaldan því klassískt símtal hjá mér í vinnunni er svona:

Anna: Anna
Viðskiptavinur: Já góðan dag hvað er opið hjá ykkur lengi?
Anna: Til klukkan fimm
Viðskiptavinur: Hvar eru þið til húsa?
Anna: Við erum... hvað þarftu að gera?
Viðskiptavinur: Ég ætlaði ganga frá reikningi.
Anna: Já, þú getur greitt inn á reikninginn okkar eða greitt í gegnum síma með kreditkorti.
Viðskiptavinur: Já ég ætlaði líka að breyta greiðandanum..
Anna: Ef þú gefur mér upp netfangið þitt get ég sent þér upplýsingar um hvernig þú gerir það á vefnum hjá okkur.
Viðskiptavinur: En ég ætlaði líka að fá reikning á aðra kennitölu.
Anna: Ef þú sendir póst á innheimtuna geta þær útbúið reikning þegar þú ert búin að breyta greiðandanum.
Viðskiptavinur: Er bannað að koma til ykkar?
Anna: hehe

Auðvitað er ekki bannað að koma til okkar, en til hvers að koma þegar þú getur gert allt sem þú þarft að gera í gegnum vefinn? Auk þess er ég oft ógreidd og ómáluð í vinnunni...

Nei ég segi bara svona. Ég er samt oft ógreidd og ómáluð í vinnunni. Nema það teljist til "greiðslu" að renna fingrunum í gegnum flókann í hnakkanum?

Við vorum að taka í notkun vefkerfi sem gerir viðskiptavinum okkar kleyft að breyta nánast öllu í gegnum vefinn en þar sem kerfið er nýtt eru ýmsir smá hnökrar á því. Af þessum sökum hef ég haft extra áhuga á að vita hvar fólk strandar í kerfinu og hvað má gera betur. Þetta skilar sér greinilega til viðskiptavina þar sem þeir hafa margir látið í ljós ánægju með þjónustuna þegar ég er búin að hjálpa þeim. Maður sem var að greiða gjald, sem hann var mjög ósáttur við að greiða, sagði við mig í lok símtalsins: "Þakka þér fyrir góð svör og.. jah.. bara skemmtilegt samtal". Ég verð samt stundum að passa mig.. ég dansa á línunni...

Um daginn hringdi í mig maður og þurfti að skrá svolítið. Ég byrjaði að þylja upplýsingarnar sem hann þurfti að gefa mér upp og þegar ég var búin með nafn, kennitölu, heimilisfang... komst ég ekki lengra því hann hváði við og spurði hvað við þyrftum eiginlega mikið af upplýsingum. Ég hélt áfram í stofnanatóninum: "skónúmer, jakkastærð..." og hann fór að hlæja. Maðurinn var með svo smitandi hlátur að ég fór að hlæja líka. Hrikalegt svona fólk. Restin af samtalinu einkenndist af hlátursköstum á báða bóga. Okkur tókst samt að gera í sameiningu það sem hann ætlaði að gera og hann þakkaði mér kærlega fyrir. Þetta hefði ég t.d. ekki komist upp með að segja við... jah.. Björn B... maður veit ekki... Fólk kemur á óvart og mér finnst Íslendingar almennt skemmtilegir. Allavega stutt í húmorinn hjá flestum.

Annars held ég að lúða lúkkið mitt sé að gera mikla lukku. Sé alltaf fleiri og fleiri konur mæta ómálaðar með tannkrem í munnvikinu til vinnu.

Ég er regular trend setter!


| anna | 20:14 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web