www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Kölkuð eyru
Fimmtudagur, 15. janúar 2004

Mér er búið að vera illt í hægra eyranu núna í tvo daga. Af þessum sökum ákvað ég að fara til heimilislæknisins míns í dag og láta hann kíkja í eyrað á mér og kokið (því mér líður eins og það sé galopið þarna á milli) og tékka á hvort ég gangi nokkuð heil til skógar.

Það er fyndið með þennan lækni.. þegar ég fer til hans þá segir hann undantekningarlaust að það sé ekkert að mér. - Eins og í dag.

Í dag var hann samt ekki einn að verki, spurði mig hvort mér væri sama þótt læknanemi væri viðstaddur. Mér var alveg sama. Stuttu seinna mætti á svæðið geðþekk ung stúlka.

Anyway...

Hann skoðaði uppí munninn á mér og lét mig segja A þangað til ég missti andann. Hann og læknaneminn hlógu að mér. (góðlátlega) Svo sýndi hann nemanum í eyrað á mér og talaði um hamar og steðja og fleira sem fékk hárin á bakinu á mér til að rísa af hryllingi. Næst rauk hann í vinstra eyrað á mér og kíkti heilann helling og bað svo nemann að kíkja og spurði hvort hún sæi ekki eitthvað hvítt inní eyranu á mér. Jú, hún sá eitthvað hvítt..

"Þetta er kölkun og er eðlileg hjá fólki á þessum aldri". Svo hló hann svona Dr. Evil hlátri: MÚHOHOHOHO

KÖLKUN? Þegar ég fór heim frá lækninum var ég með recept uppá tvöfaldan prósakk gegn ímyndunnarveiki og þunglyndi yfir því að eyrun á mér eru byrjuð að kalka.

Eða þannig... ástæðan fyrir þessari kölkun er sú að þegar ég var krakki sprungu hljóðhimnurnar í mér svo oft að þær eru hálf bæklaðar greyin og já.. eru byrjaðar að kalka. Tekur því kannski ekki fyrir mig að hætta að reykja eftir allt saman..

Nú... ég er á grensunni að vera með hálsbólgu (sem þýðir að ég er ekki með hálsbólgu en samt alveg næstum því) og ég er ekki með eyrnabólgu en það er líklegt að ég fái eyrnabólgu ef ekki/hálsbólgann verður að hálsbólgu.

Hann sagði mér að taka pektólín þangað til hálsinn á mér lagaðist og þá myndi eyrnaverkurinn lagast.

Það getur verið helvíti uppörvandi að vera hjá lækni sem segir aldrei neitt vera að manni. - Enda skánaði eyrnaverkurinn töluvert, þó hann sé nú ekki farinn blessaður....


| anna | 19:24 |
comments

Oft gott að fá að vita að ekkert sé að manni. doubt
Minnkar álagið á makann að vorkenna "aumingjanum" embarassed

Nr. 1 | posted by: Harpa | 15.01.2004 | 21:25:42 | [+] |

Ég vorkenni þér samt helling. Það er ekkert verra en að vera næstum því veikur boggled

Nr. 2 | posted by: Harpa | 15.01.2004 | 21:26:43 | [+] |

Minnir mig á viðgrögð ágæts læknis sem var að skoða röntgenmynd af handleggnum á mér: "Þú ert ekki brotin, væna mín, og þá get ég ekkert gert nema að vorkenna þér smástund" !! Hreinskilni eða hvað ?

Nr. 3 | posted by: Tóta | 16.01.2004 | 11:39:15 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web