Föstudagur, 09. janúar 2004
Í kvöld sungu Idolin "okkar" lög sem dómnefndin valdi. Það getur oft verið gott að láta fagmennina velja og það skilaði sér í góðum Idol þætti.
Í kvöld kom Jón fyrstur á sviðið og söng Sorry seems to be the hardest word með Elton John. Hann komst ágætlega frá þessu en er langt frá því að vera besti söngvarinn á svæðinu. Breytir ekki þeirri staðreynd að hann hefur útgeislun á við fjórar manneskjur. Ég held uppá karakter Jón. Hann stefndi hinsvegar á annað sætið og nálgast takmarkið óðfluga.
Ardís söng Long and winding road með Bítlunum. Hún datt út eftir sönginn í kvöld og ég er búin að pinpointa hvað það er sem hefur farið í taugarnar á mér við röddina hennar. Hún er að læra söng og það heyrist. Flutningur hennar er laus við alla tilfinningu og augun eru köld. Hún átti von á að detta út og gerði það gracefully. Ég held hinsvegar að Ardís eigi framtíðina fyrir sér í klassískri tónlist, ef hún finnur hjartað í sér og getur berað það með söngnum.
Í langhlaupi hvíla hlauparar sig þegar þeir eru komnir hálfa leið, hægja á sér, og gefa svo hressilega í á lokasprettinum. Ég fer að halda að Kalli sé langhlaupari. Hann var la la í fyrstu Smáralindar þáttunum en í kvöld, eins og síðasta föstudag, glansaði drengurinn í gegnum "I still haven't found what I'm looking for". Bubbi, sjón og heyrnalaus, sagði að Kalli hefði stælt Bono. Ég er ekki sammála. Bubbi sagði annað sem mér fannst afar áhugavert: "það geta allir stælt Bono" og ég spyr: "ef allir geta stælt Bono.. hvað er þá svona merkilegt við hann?" Ekki það.. ég hef alltaf spurt hvað er svona merkilegt við Bono, en það er önnur saga. Kalli er lang flottasti performerinn af þessum krökkum og ef veðbankar væru til á Íslandi væri hann dead cert winner í hverjum eina og einasta.
Anna Katrín söng "Don't speak" og ef röddin hefði ekki orðið að andakvaki í háu tónunum hefði þetta verið brilliant hjá henni. Þessi stelpa hefur karakter, og sviðsframkomu sem hæfir Idoli en hún þarf að laga þetta kvak í röddinni því fyrir utan kvakið er hún með þrusu rödd. Ég er hrædd um að mér finnist norðlenska ekki vera afrodísíak. Mér finnst hún frekar.. æ.. best að segja ekki orð um það.
Dúllusnúðurinn Birgitta kom að dæma og gerði bara vel, fyrir utan að vera sammála Bubba um að Kalli væri að stæla Bono. Mér finnst Birgitta flott stelpa og fyrirgef henni alveg. Mér finnst Bubbi skrítin fígúra og fyrirgef honum ekki.
Það er nokkuð ljóst að Kalli vinnur þessa keppni og ef Anna Katrín kemur röddinni í lag verður hún í öðru sæti. Ef ekki... þá verður Jón Sigurðs númer tvö.. eins og tvífari hans Clay Aiken. Ég held að Kalli þyrfti að skandalisera helvíti mikið til að vinna ekki. T.d. mæta nakinn og kyrja á froskamáli eurovision lagið "Einu sinni, einu sinni enn"..
Í kvöld horfði ég á Svínasúpuna og hló mikið. Mér fannst atriðið í gróðurhúsinu fyndnast og verð að segja að mér finnst Auddi bara helvíti flottur gæi. Aulahúmor er besti húmor í heimi. Mig minnir að spaugstofan hafi fundið upp Dodda og Dolla sem voru aula-húmors-meistarar síns tíma og þessir tveir, grín leppalúðar í Svínasúpunni í kvöld fannst mér frábærir. Gefa Dodda og Dolla ekkert eftir.
Núna ætla ég hinsvegar að uppfæra linka á bloggara hjá mér. Góðar stundir.