Laugardagur, 31. janúar 2004
Mamma var að koma frá Kanarí um daginn. Hún gaf okkur fullt af góssi. Fallegan dúk á borðstofuborðið, fyndna hatta og poka af Hershey's kossum.
Ég fór beint frá mömmu að sækja Dodda í sund og þegar Doddi sá pokann af kossunum sagði hann: "Vei mamma, dinglur!"
"Dinglur?", spurði ég. "Já, mamma.. mannstu ekki í sjónvarpinu um jólin?"
Jú.. ég man. Hershey's kossar í sjónvarpsauglýsingu þar sem kossarnir voru þykjustu bjöllur sem spiluðu jólalag.
Mér finnst dinglur miklu skemmtilegra nafn en kossar. Hef aldrei skilið af hverju þetta eru kallaðir kossar anyway þetta er miklu líkara litlum bjöllum.
Í dag kláruðum við dinglurnar en við erum hinsvegar að hugsa um að fara til Kanarí í vor. Doddi er reyndar alveg á móti því að fara af landi brott. Vill að við könnum hvort það eru eitraðar köngulær eða snákar á Kanarí fyrst. Veit einhver hvort það eru eitruð dýr á Kanarí? Ég reikna með því að kakkalakkar séu ekki eitraðir...