Blessuð blíðan og svona...
Sunnudagur, 25. janúar 2004
Við fórum í dag og keyptum nýja þvottavél. Mikil blessun. Það kom maður á risastórum bíl með hana og hann og Tóti báru gripinn upp á sjöttu hæð, þar sem ég bý. (held ég sé búin að segjast búa á annari hæð, þriðju hæð, fjórðu hæð og fimmtu hæð, maður má ekki vera með gamalt efni..)
Afgreiðslumaðurinn hjá Raftækjaverzlun Íslands hf sagði okkur að áður en við gætum byrjað að þvo yrðum við að losa lokið á vélinni, renna því af og losa flutningsfestingarnar. Allt í lagi með það svosem... svo sagði hann að ef við værum bara með kalt vatn yrðum við annaðhvort að kaupa t-stykki á vatnsinntakið hjá sér eða í byggingarvöruverslun. Við áttum t-stykki. Hann sagði okkur hinsvegar ekki að það væri bresk kló á vélinni og að við þyrftum að kaupa nýja kló. Það kom svo í ljós, þegar við vorum búin að fá vélina, að maður hreinlega laug uppí opið geðið á okkur og gaf okkur leiðbeiningar með rangri vél því staðreyndin, skv. enskum leiðbeiningum sem fylgdu vélinni, er sú að maður losar upp festingar aftan á vélinni en ekki undir lokinu. Leiðindar smáatriði sem gæti eyðilagt heilan dag. - Heila þvottavél jafnvel.
Við vorum hinsvegar ekkert að láta þetta á okkur fá, enda skiljum við ensku og látum ekki illa þýddar og ljósritaðar leiðbeiningar á íslensku villa fyrir um okkur.
Nei.. nú er ég bara hreint út sagt rætin. Þetta eru aðallega innsláttarvillur.. annars ágætlega þýtt. Ég skil samt ekki hvernig hægt er að slá inn mómull í stað bómull.. - Ekki það að ég hafi lesið þetta spjaldana á milli. Ég las ensku leiðbeiningarnar hinsvegar spjaldanna á milli.. enda voru þær fyrir vélina sem ég keypti..
Þetta eru góðar leiðbeiningar, þessar ensku, og það var farið yfir það í fimm skrefum hvernig maður fær svona þvottavél til að virka. Af fimm skrefum loknum var vélin byrjuð að þvo, tóma vél með engri sápu - eins og stóð í leiðbeiningunum - 95° vél.
Hljóðið sem þessi vél gefur frá sér er litlu meira en saumavélin mín gefur frá sér, og þá er ég að tala um þegar hún er að vinda. Ég er strax farin að plana drullupolla leiki til að virkilega athuga hvað hún getur.
Annars er óhreinn þvottur út um allt. Baðkarið fullt af óhreinu taui og hvaðeina. Til að flýta fyrir fór ég í gegnum hauginn og henti tveimur ruslapokum af taui sem ég, börnin eða Tóti erum hætt að nota. Þetta eru föt sem mæðrastyrksnefnd myndi fúlsa við, það er á hreinu... og ég skil ekki að fólk rétti okkur ekki klink bara svona hversdags þegar ég hugsa um útganginn á okkur! Einn daginn verður draumur minn að veruleika og þá verður haldin landssöfnun fyrir mig til að ég geti keypt mér snekkju og siglt í sólarlagið með kampavín í glasi. Það kemur að því..
Í kvöld sat ég svo við tölvuna og skemmdi heimasíður vina minna eina af annarri. Fór í eitthvað svona kvikindisskap, eins og Láki, og langaði til að gera eitthvað reglulega ljótt. Nei ég lýg. Ég skemmdi bara eina síðu með því að gera mig ekki skiljanlega og mig langaði ekkert til þess. Það kom tár. Nei það kom ekkert tár... held ég sé að ofþorna.. það er ekki til neitt kók hérna.. djöfuls blankheit alltaf...
OH! Djöfull brá mér núna! díng-díng-díng-díng-dong "Útvarp reykjavík.. nú verða lesnar fréttir" Mér finnst þetta svo sorglegt stef. Nú langar mig að gráta.