www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ávalt viðbúin
Sunnudagur, 18. janúar 2004

Nýkomin úr baði, búin að naglalakka mig, fötin fyrir morgundaginn tilbúin á stólnum inní herbergi, nesti tilbúið fyrir Jóhönnu, búið að hengja uppúr vélinni, diskarnir eftir kvöldmatinn hreinir í uppþvottavélinni, gsm síminn full hlaðinn, bíllinn fullur af bensíni, peningar á debetkortinu, ný klósettrúlla á baðherberginu, óopnaður sígarettupakki í veskinu, body lotion á náttborðinu....

Yeah right.

Ég er búin að sitja fyrir framan sjónvarpið í allt kvöld og hef ekki gert handtak. Það er sunnudagur og ég er eins undirbúin fyrir vinnuviku eins og píanó í þurrkherbergi er tilbúið fyrir stillingu.

En þetta reddast...

Þegar ég var í Iðnskólanum var einn kennari sem fór einu sinni yfir "persónulegan stíl" okkar stelpnanna í bekknum. Hann lét okkur setjast í hring og spurði hvað við eyddum miklum tíma í að velja föt fyrir hvern dag. Kom í ljós að þær stelpur sem voru alltaf tip top til fara eyddu töluverðum tíma í að vera tip top. Ég hafði aldrei pælt í því að svona tekur tíma. Hélt að sumar stelpur væru bara "flottari" en aðrar. Sumar eyddu klukkutíma að kvöldi hvers dags í að velja saman föt, aðrar eyddu tveimur tímum, sumar þremur tímum eða fleiri en flestar eyddu minni tíma enda skilaði það sér í "verra" útliti.

Tip top týpurnar eyddu líka rosalega miklum tíma í að skoða föt og versla. Sem betur fer vissi engin þeirra að akkúrat þennan dag átti ég engar hreinar nærbuxur.. og var þessvegna í nærbuxum af Tóta. Seinna sá ég atriði í bíómynd þar sem mamman leggur áherslu á að sonur hennar sé alltaf í "góðu" nærbuxunum, just in case ef hann lendir í slysi og þarf að fara á spítala. Síðan þá hef ég farið commando ef ég á ekki hreinar næríur. Just in case... Það er auðvitað glatað að finnast dauð út á víðavangi og í karlmannsnærbuxum! Það gengur ekki.. Alveg sama þótt þær séu hreinar.

Ég dáist af fólki sem gefur sér tíma til að pæla í útlitinu og hefur gaman af því. Ég er samt ekki þannig. Þessvegna þótti mér vænt um, þegar þessi ákveðni kennari sagði okkur að þeir hönnuðir sem hann hafði unnið með í gegnum tíðina, og þá erum við að tala um þessa útlensku "flottu" hönnuði, klæddust yfirleitt bölvuðum lörfum og pældu ekkert í eigin útliti. Það voru hálfgerð slagsmál að koma þeim í "skárri" fötin fyrir sýningar svo þeir litu ekki út eins og rónar þegar þeir gegnu inn the cat walk eftir sýningar.

En það er svo annað mál.. sumir þurfa að líta vel út og aðrir þurfa þess ekki.

Kannski, þegar krakkarnir eru orðnir eldri og ég hætti að vinna allann daginn og finn nennu í að krúsa útsölur og versla föt yfirleitt... kannski að ég nenni að vera tip top. En það veit sá sem allt veit.. að ég nenni því ekki núna. Í stað þess að fara inní skáp og finna eitthvað annað en Vanilla Sky bol.. ætla ég í bað.

Það er það góða við Vanilla Sky bolina. Við eigum ca 30 stk. Það er alltaf hægt að finna einn sem er hreinn...

- Dettur mér í hug... það er kannski ráð að kaupa sér fleiri nærbuxur!


| anna | 22:54 |
comments

Það fyrsta sem gerist þegar fólk verður fyrir alvarlegu líkamlegu áfalli (já og dauði flokkast líka undir það) er að stjórn á hægða- og þvaglosun hrekkur úr sambandi.

Þannig að: Þegar maður finnst dauður er maður hvorteðer í skítugum nærbuxum.

Nr. 1 | posted by: Tóta P. | 19.01.2004 | 1:15:11 | [+] |

En ef manni er ekki mál? doubt

Annars skiptir það engu máli. Málið er að vera í nærbuxum fyrir rétt kyn. En fyrst þetta gerist svona af sjálfu sér.. þá er spurning um að ganga alltaf um með allways ultra. - Just in case...

laughing

Nr. 2 | posted by: anna | 19.01.2004 | 9:43:35 | [+] |

Merkilegt. En er samt ekki skemmtilegra að vera í kvennmannsnæríum? hehehe

Nr. 3 | posted by: anna | 19.01.2004 | 10:28:13 | [+] |

Ef maður sé ekki alltaf rosa flott er svo gaman að verða rosa flott því þá sjá allir hvað maður er rosa flott þrátt fyrir allt. Gildir náttúrulega ekki fyrir megaherfur sem geta aldrei verið rosa flottar, en það er nú bara aumingja þær.

Svo reynir mann bara að lykta ekki illa á klofsvæðinu þegar leiðin liggur í sund eða skipulögð líkamsræktarhús, það er nokkuð nauðsynlegt. Reyna bara að lenda í slysum til eða frá slíkum stöðum.

Nr. 4 | posted by: Atviksorða-Anna | 19.01.2004 | 20:57:02 | [+] |

laughing laughing NÁKVÆMLEGA!

Nr. 5 | posted by: anna | 20.01.2004 | 10:27:39 | [+] |

Ég man eftir sögu af strák sem fór til læknis út af einhverju fótarmeini. Hann klæddi sig úr sokknum og löppin var hrein og fín, nýklipptar neglur og allt. Læknirinn bað hann þá að fara úr hinum sokknum líka, hann þyrfti að skoða þann fót til samanburðar, og það kom ægilega vandræðalegur svipur á strákinn - hann hafði nefnilega bara þvegið og snyrt auma fótinn ...

Nr. 6 | posted by: Nanna | 20.01.2004 | 10:58:25 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web