Laugardagur, 03. janúar 2004
Söngleikja og kvikmyndatónlist var þema Idol í gær. Ég skil reyndar ekki hvaðan kvikmyndatónlistin kemur... enda eru lög sem samin eru og sungin í kvikmyndum oftar en ekki bara ósköp venjuleg dægurlög nú eða instrumental. Fólki bauðst kannski að syngja túbu.. hver veit. Ég veit hinsvegar að söngleikir bjóða upp á endalausa möguleika af fallegum lögum og ég hefði viljað sjá íslenska Idol bjóða manni upp á alvöru þema með tilheyrandi leik sem lög úr söngleikjum bjóða oftar en ekki uppá.
Fyrst á sviðið kom Ardís. Kannski er það bara ég.. en mér finnst þessi manneskja virka lokuð á mig. Frosin. Söng Footloose eins og hún væri meðlimur í Borgardætrum en vantaði backup til að fá stemmingu. Footloose er ekki söngleikur. Footloose er dans-mynd. MTV myndband minnar kynslóðar. Ég hefði viljað sjá hana syngja eitthvað eins og Hopelesly Devoted To You því let's face it.. hún er eins og Sandy fyrir breytingu. - Auk þess held ég að það lag hafi hentað hennar rödd betur. Hún hefði getað eigrað um sviðið í sakleysi sínu og tekið þetta lag með trompi. En hún valdi Footloose.. og í rangri tóntegund. Sjís.. Bubbi, sjón og heyrnalaus, sagði að þetta væri flott. Hinum var ekki skemmt.
Næstur á sviðið skálmaði hinn glaðbeitti Jón Sigurðsson. Þetta er einlægasti keppandinn. Sást best þegar hann og what's his name voru tveir einir þar síðast og hinn datt út. Jón var svo hissa að hann gat ekki falið það. Jón söng Sound of Silence. Ekki úr söngleik. Sorglegt. Ég hefði séð hann fyrir mér syngja Singing In The Rain, með regnhlíf og alles, eða If I Were A Rich Man. Hann komst þokkalega frá The Sound Of Silence. Bubbi, sjón og heyrnalaus, sagði að hann væri of tilgerðarlegur.
Anna Kristín kom næst á svið. Já.. sú sem aulaðist til að tilkynna íslenskum börnum að jólasveinninn væri ekki til í þar-síðasta þætti.. Persónulega finnst mér hún best af hópnum en ég "held" ekki með henni. Hún getur sungið hvað sem er, virðist vera, en valdi lag úr The Lion King. -Sem er ekki söngleikur. Anyway... ég sá hana fyrir mér.. ég reyndar sá hana ekki fyrir mér syngja neitt úr söngleik. Þótt hún geti sungið hvað sem er.. held ég að hún geti ekki sungið söngleik. And she didn't prove me wrong. Röddin brást hraparlega á tveimur stöðum í laginu en Önnu til varnar er hún raddlaus...
Uppáhalds keppandinn minn hingað til er Tinna Marína. Mér finnst hún flott og hún getur gert ótrúlega hluti með röddinni. Hún bara gerði það ekki í gær. Tók Against All Odds. WHY? Lagið er ekki úr söngleik fyrir það fyrsta. Rödd Tinnu hefði farið betur á Óskarsverðlaunalaginu My Heart Will Go On ef hún ætlaði að fara kvikmynda-laga-leiðina. Ég hefði viljað sjá hana syngja Wouldn't It Be Lovaly úr My Fair Lady eða I Could Have Danced All Night úr sömu mynd. Verð líka að segja að ég skil ekkert í þessu liði að taka ekki eitthvað James Bond lag fyrst þemað var ekki einskorðað við söngleiki. Tinna var hræðileg í gær eins og hún hefði ekki verið með sjálfri sér, enda datt hún út. Sorglegt.
Í gær átti Kalli svæðið. Hann rúlaði gjörsamlega þegar hann söng Greased Lightning sem er úr SÖNGLEIK. Ef ég má aðeins skjóta inní... Mín skilgreining á söngleik er þegar 10 eða fleiri lög eru sungin í myndinni af leikurunum og texti laganna kemur í stað dialógs. Grease er söngleikur. Tóti flippaði þegar hann fattaði það því hann hatar söngleiki en finnst Grease snilld. Svona getur lífið verið. Kalli kom, sá og sigraði í gær. Lang flottastur. Hann átti salinn og ég efast ekki um að hann hafi átt heimilin sem fylgdust með. Hann var sá eini af þessum fimm sem virkilega skilaði sínu í gær.
Mér fannst Þórunn standa sig vel sem dómari. Hefði svosem ekki þurft að gera mikið til að toppa hrokafullan Egil. Kræst hvað hann var leiðinlegur.
All in all.. þá vonaði ég reyndar að Ardís myndi detta út í stað Tinnu en manni verður ekki alltaf að ósk sinni.
Að lokum. Ég sé að ég tók rétta ákvörðun þegar ég ákvað að fara ekki í prufu í Idol. Það er ekkert grín að leggja hausinn á fallöxi alþýðunnar.