Föstudagur, 26. desember 2003

Ég byrjaði að pússla Romantic Town í gær nótt. Spennan er gífuleg þar sem pússlið er keypt notað og ég veit ekki hvort allir bitarnir eru til staðar.
Núna er ég hinsvegar nývöknuð og á leiðinni í jólaboð í Þorlákshöfn. Ef ég rata. Ef ég rata ekki treysti ég á björgunarsveitir landsins. Ég kem til með að vera í ca hálftíma til klukkutíma í þessu boði þar sem húsráðendur eiga fullt af loðnum dýrum sem ég hef ofnæmi fyrir. Gæti möguleg stein drepist úr ofnæmi á leiðinni heim. En þar sem þetta er bróðir minn sem býr þarna út í afdölum verð ég að láta sjá mig. The things I do for love.
Þegar ég kem heim ætla ég að fara í bað til að þvo loðdýrin af mér, brenna fötin mín, og svo held ég áfram að pússla. Eða horfi á Lord of the rings.. eða spila í the prince of persia.. það er svo mikið að gera hjá mér í afslappelsi að þetta er bölvað stress!!