www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Tannkul, perrar, símar og body lotion
Föstudagur, 05. desember 2003

Í morgun velti ég því fyrir mér að hengja mig inná baði áður en ég drattaðist frammúr rúminu. Ég átti nefnilega tíma hjá tannlækni. Var líka að spá í að ræna banka til að eiga fyrir tannlækninum. Ætli klíník daman sem er að vinna hjá honum (sem mér finnst ferlega skemmtileg) hafi ekki séð það á mér vegna þess að þegar ég settist í stólinn glumdu fréttir um bankarán í morgun í Grafarvoginum og hún spurði mig hvort ég hefði nokkuð rænt banka nýlega. "Já, sagði ég, "enda var ég á leiðinni til tannlæknis.. hugsaði: "I'm dead anyway".

Þótt hann sé sætur þá á hann það til að meiða mig hryllilega og ég kveið því að fara til hans. En af því að hann er svo sætur þá er það svona.. gott/vont kvíði. Allt var í lagi með tennurnar í mér og eftir að hann var búin að pensla á mig flúor, allar tennurnar nema framtennurnar, fór ég að spyrja hann útí þessa kvítkun á tönnum. Hann var búin að benda mér á að það er hægt að fá góm og efni og voila! Hvítari tennur. Það eina sem fólk ætti til að fá er tannkul í sólarhring eftir meðferðina svo hann spurði mig hvort ég væri sensitíf fyrir tannkul. "Nei, nei" sagði ég, "það er ekki beint sársauki að hafa tannkul, meira svona gott/vont".NOKIA 3100

"Þú ert nú meiri perrinn" sagði hann.

Oh well. Hann hlaut að komast að þessu fyrr eða síðar.

NOKIA 8210Fékk mér nýjan gsm síma í dag. LOKSINS! Ég er búin að vera með helvítis fokdýra 8210 Nokia módelið sem er algjört drasl. Þar sem mig langar ekki að lesa tölvupóstinn minn í símanum, fá veðurspá eða taka myndir ákvað ég að fá mér NOKIA 3100. Hann er hriiiiiiikalega sætur og bleikur. Svona Barbie sími. Best af öllu er að hann virkar. Ef hann virkar eftir eitt ár verð ég sátt.

Þetta er samt ekkert miðað við það sem ég fann í Hagkaup í Smáralind. Því þar fann ég body lósjonið sem ég varð húkkt á fyrir rúmu ári síðan og svo hvarf það úr hillum verslana, eins og allt sem ég verð húkkt á. Í þetta sinn hefur varan snúið aftur og nú get ég borið á mig Mirra & Mirra body lotion eins og mér sé borgað fyrir það. Eh.. kannski ekki alveg eins og mér sé borgað fyrir það.. ég þarf auðvitað að borga fyrir herlegheitin.

Mirra & Mirra frá I COLONIALIÞað, að eiga svona body lotion, froðubaðið og sápuna úr þessari línu fær mig í alvöru til að langa enn frekar til að hætta að reykja, því lyktin af þessu er eins sú besta sem ég hef á ævinni fundið. Þeir sem vilja dekra við mig um jólin geta sent mér hvað sem er úr þessari línu. (Síðustu setningunni er aðallega beint að Tóta)

ÚHÚ! Svo er IDOL kvöld í kvöld. Gleði. Og mér til ómædrar ánægju fær Bó Halldórs að vera gesta dómari. ÞAÐ VERÐUR EKKI MIKIÐ BETRA!

Það er ekkert annað að gera en að fara í bað, bera á sig body lotion og fara að fikta í símanum fram að IDOL.

Ég vona að Jóhanna Vala fari á kostum eins og hún hefur gert. Ég er ennþá með rapson, grepson á heilanum við lagið "I say a little prayer for you"...


| anna | 18:01 |
comments

Að finna jólagjafir handa betri helmingnum er það versta sem ég lendi í. Núna held ég samt að málið sé leyst, mörgum dögum fyrir þorláksmessu. Ég ætla að gefa frú Hudson forláta kaffivél sem mig hefur alltaf langað til að hún ætti. Ég er viss um að það slær í gegn - eruði ekki sammála?

Annars er ég opinn fyrir fleiri hugmyndum.

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 5.12.2003 | 22:33:03 | [+] |

Mig dauðlangar í svona fína kaffivél sem býr til cappuccino og svoleiðis sull og ef frú Hudson er fyrir kaffi þá verður hún glöð, annars er herra Hudson í vondum málum.

[eyebrows]

Nr. 2 | posted by: Ljúfa | 6.12.2003 | 1:09:48 | [+] |

Ein jólin fékk ég mínútugrill og djúpsteikingapott í jólagjöf.
Rausnarlegt, ekki satt? Hmpfrrr, ég er enn að ergja mig á því. Samt er djúpsteikingarpotturinn dáinn.
Nú viðrar minn sambýlingur þá hugmynd hvort mig vanti ekki nýjan pott.
Sú hugmynd kemst þó aldrei á flug því ég nefni óðara að réttast væri að gefa honum ferð til úttlanda.
Ekkert hræðir hann meir!
Ég reikna ekki með djúpsteikingarpotti þessi jólin clown

Nr. 3 | posted by: Harpa | 6.12.2003 | 2:10:36 | [+] |

Alan:

Áttu nokkuð hund? Organistafrúin var nefnilega að minnast á tæki sem þýðir hundsgelt. Það fæst í The Sharper Image.

Nr. 4 | posted by: organistinn | 6.12.2003 | 9:05:20 | [+] |

Það er hægt að panta þetta tæki yfir netið ef einhver hefur áhuga á. Það virkar líka fyrir íslenskt gelt:

http://www.sharperimage.com/us/en/catalog/productview.jhtml?sku=TK100RED

Nr. 5 | posted by: organistinn | 6.12.2003 | 9:10:25 | [+] |

notaði svona baðsápu og fannst það voða fínt, lyktin er akkúrat svo góð. Keypti þetta aðallega af því að mér fannst umbúðirnar svo flottar. Síðan þetta hvarf hef ég ekki keypt neitt og er eiginlega hættur að nota sápu nema svona tvisvar til þrisvar í viku. Enda er annað óhollt og óeðlilegt. Ég næ yfirleytt að stela mér einverju rusli sem er í sturtunum sem ég nota ( já ég sagði sturtunum, ég er víðförull). Þetta er þegar uppi er staðið allt sama dótið.

Nema náttúrulega þangað til Mirra kemur aftur í hillurnar. cool

Múhahahahahahaha

Nr. 6 | posted by: thors | 6.12.2003 | 18:44:57 | [+] |

Það ætti nú aldrei að treysta tannlæknum þegar þeir segja hvað tannkul varir lengi. Það var eitthvað slípað hjá mér þegar ég var svona sex eða sjö ára og ég er ennþá með tannkul á neðri framtönnunum, sem átti að vera bara í viku eða eitthvað svoleiðis.

Nr. 7 | posted by: Ragna | 7.12.2003 | 11:41:41 | [+] |

Anna: Ég var nú meira að hugsa um svona stóra expresso vél sem maður hitar á hellu. Ekkert voða fansí. Heldurðu að það gangi ekki?

Nr. 8 | posted by: AlanHudson | 7.12.2003 | 16:23:25 | [+] |

Neee... ég held ekki. Með fyrirvara um að ég þekki auðvitað Mrs Hudson.

En ef þú setur fallegan hring eða hálsmen inní kaffikönnuna.. þá er þetta orðin hin fullkomna gjöf! wink

Nr. 9 | posted by: anna | 7.12.2003 | 18:00:59 | [+] |

Já, kannski er þetta rétt hjá þér. Svona eftir á að hyggja þá varð hún ekki sérlega glöð þegar ég gaf henni pottasettið hér um árið. Samt var það ryðfrítt og glansandi og ákaflega sterkbyggt. Sérstaklega pannan með langa handfanginu. Veistu kvurslags vopn það eiginlega er?

Nr. 10 | posted by: AlanHudson | 7.12.2003 | 18:36:01 | [+] |

LOL ég get ímyndað mér að hún hafi sýnt þér það þegar hún opnaði pakkann!!!!

Mér fyndist mjög smart að gefa henni kaffikönnuna ef þú setur eitthvað fallegt bara fyrir hana inní könnuna. Þá verður hún fyrst rosa svekkt en svo rosa kát. Þar sem ég elska að koma fólki á óvart væri það svona típístk eitthvað sem ég myndi gera. Dettur mér í hug.. kannski pakka ég jólagjöfinni hans Tóta inn í tampax pakka í ár! cool

Nr. 11 | posted by: anna | 7.12.2003 | 19:54:03 | [+] |

Hvernig líst þér á að gefa henni svona batterísborvél? Hún yrði með stillanlegum hraða svo það væri hægt að nota hana sem handþeytara og handhrærivél í eldhúsinu líka? Og ef ég kaupi höggversjónina þá myndi hún nýtast til að vinna á heimabakaða þýska orkufjallabrauðinu sem stundum er bakað hér á heimilinu. Ég held líka að þetta sé pólitískt correct gjöf, amk hlytu femínistar að fagna svona græju.

Nr. 12 | posted by: AlanHudson | 9.12.2003 | 3:58:32 | [+] |

Góð hugmynd Alan, sérlega höggversjónin, sem nýtist líka sem kynferðislegt hjálpartæki þegar þú ferð í viðskiptaferðir.

Nr. 13 | posted by: organistinn | 9.12.2003 | 8:42:12 | [+] |

Sjís alveg...

Nr. 14 | posted by: anna | 9.12.2003 | 9:11:41 | [+] |

Organisti, hvað ætlar þú að gefa betri helmingnum?

Nr. 15 | posted by: AlanHudson | 9.12.2003 | 14:42:45 | [+] |

Ég sá ansi góðan synthesizer um daginn sem ég veit að hún á ekki. Var líka að spá í Lindu og Rut, saman í einum pakka með góðri vínsflösku.

Nr. 16 | posted by: organistinn | 9.12.2003 | 17:46:23 | [+] |

Southern Comfort ætti að duga ef þú ætlar að gefa þessar bækur saman.

Nr. 17 | posted by: AlanHudson | 9.12.2003 | 18:08:55 | [+] |

TIL HAMINGJU MEÐ NÝJU DÚLLUNA! smile

Ég vona að ykkur mæðgunum heilsist vel. Bjúglosandi te er málið í jólagjöf fyrir þig og heilsu-dekur-dagur í spa. wave (ég er búin að hugsa alveg rosalega mikið til þín undanfarið og hef reynt að senda góða strauma. Skiluðu þeir sér?)

Nr. 18 | posted by: anna | 10.12.2003 | 14:21:21 | [+] |

Það þarf of miklar planlagningar til að gefa svona jólagjafir. Ég held að kaffivélin sé þá amk auðveldari viðfangs.

Nr. 19 | posted by: AlanHudson | 10.12.2003 | 16:21:26 | [+] |

Ég er búinn að leysa þetta. Hún fær bleikan rafmagnstannbursta. Það er bæði nytsöm og persónuleg gjöf. Og svo er hún líka tímasparandi þannig að það gefst meiri tími til kaffilagningar t.d.

Nr. 20 | posted by: AlanHudson | 13.12.2003 | 0:41:02 | [+] |

En ég er búinn að kaupa tannburstann! Fékk hann á $1.99 í kaupfélaginu, var á sérstöku tilboði. Colgate græja. Sýnist líka að það megi nota áhaldið sem titrara ef fólk er nógu hugmyndaríkt, nógur er amk hristingurinn þegar þetta er í gangi. En auðvitað gerir konan mín ekkert slíkt.

Nr. 21 | posted by: AlanHudson | 15.12.2003 | 0:52:47 | [+] |

Auðvitað gerir konan þín ekki slíkt. -EKKI NÚNA! En.... eftir að hún fær þennan tannbursta í jólagjöf mun hún henda þér út á Guð og gaddinn og hvað heldurðu að hún geri við tannburstan þá? Aha.. einmitt.

Think again Alan. Þú ert að grafa þér gröf.

Nr. 22 | posted by: anna | 15.12.2003 | 0:55:19 | [+] |

Alan, ef rafmagnstannburstinn getur komið í stað þín, þá hlýtur þú að vera einn af þessum ofsalegu sensual karlmönnum sem hreyfa sig svooo hææægt og róólega þegar þeir eru að gera það. Organistinn hefur alltaf talið að það væru bara útlendingar sem færu þannig að í kynlífinu. Góðir íslenskir karlmenn ríða eins og stjórnlausir loftborar, fastir í hæstu stillingu.

Nr. 23 | posted by: organistinn | 16.12.2003 | 4:48:33 | [+] |

Organisti - ég tók sérstaklega fram að þetta væri bleikur bursti.

Nr. 24 | posted by: AlanHudson | 16.12.2003 | 4:57:41 | [+] |

Það þýðir ekki að nota mig til viðmiðunar. Þó Parkinsóninn hjálpi alltaf á ögurstundu, þá eru þessar þröngu Lewis gallabuxur löngu búnar að gelda mig.

Nr. 25 | posted by: AlanHudson | 16.12.2003 | 5:28:53 | [+] |

VÁ! Mikið djöfull hlýt ég þá að vera heppin...... smile - með mitt

Nr. 26 | posted by: edda | 16.12.2003 | 12:08:44 | [+] |

Jah... nema ég kunni ekki að velja þá. laughing

Nr. 27 | posted by: anna | 16.12.2003 | 12:33:04 | [+] |

Anna, þú hefur verið með karlmönnum sem drekka til að ná honum upp!!

Ekki kannast Organistinn við þetta fyrirbæri. Hvers konar graðfolar eru það sem drekka til að ná honum upp?

Ein besta línan í þeirri góðu mynd Sunshine State kemur frá Marly Temple (Edie Falco) þar sem hún er segja Timothy Huttons karakter að vera að ekki að hafa fyrir því að sofa hjá sér því hún sé svo drukkin:

"Having sex with me this drunk would be like being at the dentist....You know something's going on in there, but you don't know what."

That´s more like it.

Nr. 28 | posted by: organistinn | 16.12.2003 | 20:02:07 | [+] |

Hún hefur þá verið ofurölvi konan.

Graðfolar... það minnir mig á.. ég sá Jude Law í gær hjá Jay Leno. Djöfull er hann flottur...

Nr. 29 | posted by: anna | 16.12.2003 | 20:07:25 | [+] |

Anna:

Er Tóta alveg sama þó þú mærir Jude Law út í endaleysuna á þennan hátt?

Meira að segja Organistanum stendur ekki á sama lengur. Ef þú hættir þessu ekki þá mun Tóti sennilega senda the Talented Mr. Ripley íslenskra spjallvefja (hann Jakob Bjarnar) til að kála Jude.

Nr. 30 | posted by: organistinn | 17.12.2003 | 9:39:47 | [+] |

Ég hef ekki fundið fyrir neinum viðbrögðum hjá honum. Það er kannski þessvegna sem ég held þessu áfram! -Ég er að bíða eftir lífsmarki! Ah.. who knows... toungue

Nr. 31 | posted by: anna | 17.12.2003 | 11:00:47 | [+] |

Ætli Tóti lesi nokkurn tíman það sem fram fer á þessari heimasíðu. Hann gæti þá farið að kynnast konunni sinni fyrir alvöru! En Jude Law - mikið skrítið hvað fjarlægðin gerir fjöllin blá....... wink

Nr. 32 | posted by: edda | 18.12.2003 | 18:26:42 | [+] |

Ég hef Tóta grunaðan um að lesa ekki síðuna mína. Allavega segir hann aldrei orð um það sem ég skrifa hérna inn. Kannski er hann bara svona duló.. wink

Nr. 33 | posted by: anna | 18.12.2003 | 18:42:29 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web