Fimmtudagur, 25. desember 2003
Ég er ekki oft orðlaus, nema þegar ókunnugt fólk er mjög dónalegt við mig, en núna er ég orðlaus. Sem er auðvitað ekki rétt þar sem ég er að skrifa að ég sé orðlaus.. er þar með ekki orðlaus.. en ég er samt orðlaus.
Ég held ég hafi ekki fengið svona margar fínar jólagjafir í fleiri, fleiri ár og átti svo sannarlega ekki von á þessu, það veit sá sem allt veit og ég var í afmælisveislu hjá í dag.
Ég fékk tösku sem inniheldur olíumálningu, pensla, þynni, og fullt af öðru listmálara dóti. Ekki nóg með það.. ég fékk trönur og þrjár stærðir af striga til að mála myndir á. Ástæðan fyrir því að þetta kom mér svona á óvart var að ég les aldrei á pakkana þegar ég set þá undir tréð. Hélt að þessir stóru pakkar væru til barnanna!!!
Það var afi Úlfur sem stal senunni við jólatréð í kvöld hvað mig varðar allavega. Málaratrönurnar voru í mjög löngum pakka, augljóslega, og ég var viss um að afi Úlfur hefði keypt annan riffil fyrir Dodda en riffillinn sem hann keypti fyrir Dodda þar síðustu jól er löngu komin undir rúm. Þegar Doddi opnaði pakka frá Grýlu og Leppalúða (aka afi Úlfur) sem innihélt gúmmískot í riffil var ég sannfærð um að það væri annar riffill í langa pakkanum og fór að rýma til undir rúmi í huganum. Að þetta væru málaratrönur hefði mig ekki grunað!
Tóti gaf mér dásamlega gjöf. Trafalgar eftir Ryba. Ég hef sko nóg að pússla á árinu! Jóhanna gaf mér leir skúlptúr sem hún bjó til sem fór beint inn í spari glerskáp og Doddi gaf mér málað listaverk sem hann málaði í leikskólanum.
Mamma gaf mér ullarnærföt (sem ég fór í eftir matinn og er ennþá í hahaha) og handklæði. Hún hefur sjálfsagt séð henglana sem við þurrkum okkur á inná baði einhverntíman þegar hún var í heimsókn. Frá tengdapabba og konunni hans fengum við sængurver og frá jólasveininum (aka okkur) fengum við Scrabble, sem við Tóti prófuðum áðan og ég hef trú á að við gætum orðið húkkt á.
Sjís.. við fengum svo mikið af gjöfum að það er ekki fyndið. Tóti fékk fyrstu tvær LOTR myndirnar á DVD í special edition útgáfu svo við getum eytt góðum hluta af jólafríinu í að horfa á aukaefnið en já.. krakkarnir...
Afi Úlfur stal senunni líka þarna. Gaf Dodda playmó sjóræningjaskipið og við gáfum honum playmó sjóræningjaeyjuna. Ég eyddi svo lunganu af kvöldinu í að pússla þessu dóti saman og krakkarnir léku sér í þessu til klukkan eitt. Þá var Doddi orðin örmagna af þreytu og sofnaði þegar hann lagði sig niður á koddann.

Hrikalega er playmó dótið orðið all svakalega flott annars.
Jóhanna fékk LOTR bækurnar á íslensku í einum pakka, Prince of Persia PS2 leik sem mig klæjar í fingurna að fara að spila og margt, margt fleira.
Ég gaf nokkrar Galdradúkkur í jólagjöf við góðar undirtektir og finnst frábært að sjá að Galdradúkkurnar sem Þórlaug keypti af mér hafi hitt í mark! Hún lagði líka heilmikla vinnu í að finna uppá skemmtilegum hlutum til að skrifa á þær svo þetta voru persónulegar Galdradúkkur.
Ég er hinsvegar að hugsa um að fara úr ullarnærfötunum (rándýrt lúxus dót keypt í Ellingsen) og í náttfötin og upp í rúm. Eh.. kannski að maður kíki á prinsinn af Persíu fyrst krakkarnir eru sofnaðir...
MÚHOHOHOHOHO