www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Mjúk náttföt með kindum
Mánudagur, 22. desember 2003

Já.. ég keypti mér mjúk náttföt með kindum á í Hagkaup. Ekki alvöru kindum. Meira svona myndum af kindum. Á morgun, klukkan tvö, er ég byrjuð í jólafríi og kem til með að bruna beint heim og fara í náttfötin. Það er á hreinu.

Annars var ég í Smáralind með systur minni sem kom með mér sem sérstakur hreinsi-línu-snyrtivöru-fræðingur. Ég var vopnuð gjafabréfum í Smáralindina upp á fullt af peningum sem ég fékk í jólagjöf frá atvinnurekandanum mínum.

Ég keypti mér hreinsimjólk, andlitsvatn, augnhreinsikrem, maska, maskara, gloss, tvö naglalökk, náttföt og að sjálfsögðuLegally Blonde. Það átti bara svo vel við og svo var hún á tilboði á 999 krónur.

Keypti mér líka peysu í Zöru og tvo boli. Ég á ennþá eftir pening en þar sem ég passaði mig á að borga alltaf með nýju gjafakorti á ég cash. Fer með það á Laugaveginn á morgun.

Ó! Ég keypti líka jólagjöf frá mér til mín í dag. Drauma pússluspilið. New York eftir Ryba. Þetta er átta þúsund bita pússluspil og kassinn nær Dodda upp á höku. Spilið er eins og gott king size rúm full pússlað. Júlía systir spurði mig hvort ég hefði gólfpláss til að pússla þetta. Nei, það hef ég ekki. Enda verður þetta ekki opnað fyrr en börnin eru flutt að heiman og ég get tekið mér góða viku með einni frænku minni í slúður og púsl. Reikna með að þetta verði þegar ég er ca 58 ára...

Þá ætla ég líka að vera orðin svo rík að ég á villu í Vatnsmýrinni með sérstöku púslherbergi með stóru borði klætt grænu filti og kók kæli upp við vegg...

-As if...


| anna | 23:11 |
comments

Ójá, Legally Blond og ný náttföt; það verður ekki komist nær himnaríki svona rétt fyrir jólin!! Ég hef afskaplega gaman af þessum myndum, þær eru alveg yndislegar laughing Frábærar jólagjafir sem þú hefur fengið þér. Mér varð einmitt að orði þegar ég var í Hagkaup í gær: Af hverju hættir fólk ekki að gefa hvort öðru jólagjafir og allir fara bara og kaupa sér það sem þá langar í?? Mikið einfaldara og allir ánægðir! Það er reyndar alltaf þetta með "Sælla er að gefa en þiggja.." en þarf það endilega að vera "að gefa öðrum en sjálfum sér"?? Ég bara spyr... Ég sendi mínar bestu jólakveðjur til þín og fjölskyldunnar!! smile

Nr. 1 | posted by: Gulla | 23.12.2003 | 1:00:55 | [+] |

Er reyndar búin að eyða tuttugu þúsund í skó á þessu ári... shy

Nr. 2 | posted by: anna | 23.12.2003 | 2:01:37 | [+] |

Ég kaupi ævinlega jólagjafir handa sjálfri mér. Eitthvað sem mig langar í en vantar ekki. Líka afmælisgjafir, sumargjafir, 17. júní-gjafir og fleira ...

Nr. 3 | posted by: Nanna | 23.12.2003 | 12:28:17 | [+] |

Áttaþúsund bitar! Ja gúmoren! Af einhverri ástæðu trúi ég því að þú hafir virkilega keypt New York (sickó), en er jafnframt með vissar áhyggjur af fjárhagsstýringunni á heimilinu. Þú ert náttúrulega bara svo ung ennþá, en seinna meir áttu eftir að sjá eftir þessum kaupum. Hvar er hin allt um stýrandi hönd maka þíns?

Þú átt ALDREI eftir að pússla það.

laughing

Nr. 4 | posted by: Atviksorða-Anna | 23.12.2003 | 20:33:41 | [+] |

Aha.. en þú skilur ekki. Ég keypti pússluspilið á 5.200 krónur (gamlar restar á lager jú sí). Það er hætt að framleiða það svo það fer hækkandi með hverju ári. Ég er að sjá það fara á átta þúsund á uppboðsvefjum, svo þetta er fjárfesting útaf fyrir sig. Þú skilur.. pússlarar eru líka safnarar og á meðan þetta er óopnað eru þetta verðmæti, hækkar líklega meira í verði en Decode hlutabréfin svo ég er í góðum málum hvað peningahliðina varðar.

Hvort ég pússla það eða ekki er svo allt önnur saga. Mér finnst það líklegt en vil þó ekki fullyrða það hehehe wink

Nr. 5 | posted by: anna | 23.12.2003 | 20:38:47 | [+] |

Stærðin er 136 x 190 full pússlað. Sirka queen size rúm. Djöfull verðum við góðar saman! Oh.. nú get ég ekki beðið eftir að ég verði 58 ára! colgate

Nr. 6 | posted by: anna | 23.12.2003 | 23:50:40 | [+] |

58 !!!! Er ekki 48 nær lagi. Jah nema við ætlum kannski að framleiða fleiri unga sem við verðum ekki enn lausar við áður en verkið hefst. Það eru alveg um 20 ár í 48 - við getum nú verið lausar við skrílinn um þann aldur. Annars geta Jóhönnurnar okkar bara séð um þau og farið með þau í bústað eða eitthvað svoleiðis...... wink Þurfum bara eina helgi......

Nr. 7 | posted by: edda | 26.12.2003 | 14:14:52 | [+] |

Jah.. Doddi var nú að tilkynna mér í gær að hann ætlaði aldrei að flytja að heimann. Þetta flækir málið töluvert... doubt

Nr. 8 | posted by: anna | 26.12.2003 | 14:39:44 | [+] |

Hurðu elskan - ekkert mál! Hann verður orðin nógu gamall til þess að blanda fyrir okkur kokteilana, nudda axlirnar þegar við verðum orðnar stífar og tappað af þvagpokunum fyrir okkur (ætlum jú að ná þessu á einni helgi og þá borgar sig ekki að eyða tíma í að fara á klóið). Hef ekki áhyggjur af þessu enda verður einhver að sinna ofangreindu og fara svo út í sjoppu þegar slykkið klárast! Í versta falli getur hann séð um yngstu börnin okkar og tekið að sér börn Jóhannanna okkar svo þær geti spókað sig um í Japan þessa sömu helgi........ LOTR er í sjónkanum og tjí hvað ég nenni ekki að kvelja mig eina ferðina enn! En frumburðurinn liggur límdur við kassann.

Nr. 9 | posted by: edda | 27.12.2003 | 0:01:21 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web