Miðvikudagur, 17. desember 2003
Dagurinn í dag fór vel og nú er ég búin að klára að útbúa öll jólakortin sem fyrirtækið sem ég vinn hjá sendir út og koma þeim af mér upp á Osta og smjörsölu þar sem þau verða sett í ostakörfur og keyrð út um allt land.
Ég fer að getað slappað af. Samt ekki. Nú er að sjá hvernig fólk tekur djókinu í ár. Fyrir þremur árum fékk ég samþykkta hugmynd um að í staðinn fyrir að senda staðlaða landslagsmynd framaná jólakortinu með "Gleðileg Jól" skrifað gylltum stöfum framaná, myndum við gera grín af okkur í jólakortunum. Í ár fékk súrrandi geðveiki mín enn á ný að njóta sín og þeir sem hafa séð kortið finnst það "snilld" svo ég kvóti nú einn. Brian Pilkington hefur teiknað kortin fyrir okkur og ég verð að segja að maðurinn er frábær listamaður og það er mjög gott að vinna með honum. Maður segir honum hvað maður vill hafa framaná kortinu og undantekningarlaust kemur maðurinn með mynd sem er akkúrat það sem maður vildi. Fyrir nú utan það að hver mynd sem hann gerir er listaverk.
Ég er búin að eyða nánast öllum mínum frítíma í þetta verkefni undanfarnar vikur svo ég sé fram á að geta farið að huga að því að komast kannski í smá jólaskap.
Annars fór ég í klippingu í dag. Þegar ég sá útkomuna hugsaði ég með mér að kannski ætti ég bara að hætta að klippa mig sjálf. Ég er orðin hriiiiiiikalega flott klippt sem verður til þess að ég fer kannski að nenna að greiða mér á morgnanna aftur. Klína jafnvel spartsli á fésið... who knows...
Það getur allt gerst.