Miðvikudagur, 10. desember 2003
Þessi mynd er yndisleg. Soldið langdregin á köflum og farið að slá í suma brandarana... en í heildina er þetta, eins og áður sagði, yndisleg mynd sem minnir okkur á að ástin er allstaðar, við þurfum bara að opna augun og sjá hana.
Því miður hafa markaðsmenn þessarar myndar skitið á sig í markaðssetningunni, vegna þess að í stað þess að skilja eitthvað eftir í sýnishorninu (sem þeir keyra miskunnarlaust í bíósölum landsins) þá sýna þeir öll bestu atriði myndarinnar og hinta á rest. Sorglegt þegar þetta er gert. Líklega sömu prómó fávitarnir sem standa fyrir þessu klúðri og þeir sem áttu heiðurinn af Bridget Jones trailernum.
Ef þú ert búin að sjá trailerinn af Love actually ertu í raun og veru búin að sjá flesta vendipunkta í myndinni og 90% af bröndurunum. Allt sem skiptir máli. Nei.. auðvitað ekki allt, en allt of mikið.
Hugh Grant er æðislegur, en Bill Nighy stelur myndinni gjörsamlega. Held að þetta hlutverk hafi verið skrifað sérstaklega fyrir manninn, svei mér þá!
3 og 1/2 stjarna