Let it snow, let it snow, let it snow...
Mánudagur, 29. desember 2003
Ég mætti klukkan níu í vinnuna í morgun. Tók mér frí eftir hádegi. Ég festi bílinn í snjóskafli á bílastæðinu við vinnuna og fékk hjálp góðra manna við að losa mig. Festi mig aftur við Hagatorg og fékk aftur hjálp góðra manna við að losa mig. Var næstum því búin að festa mig í þriðja skiptið við innkeyrsluna á bílaplaninu heima en slapp fyrir horn. Sótti Dodda í leikskólann og fór með Jóhönnu og Dodda að gera það eina sem maður á að gera á degi sem þessum:
BÚA TIL SNJÓKARL!
Snjókarlinn okkar er hriiiikalega stór en meira eins og mörgæs í framan og þá eiginlega vampíru-mörgæs því við fundum bara fjóra steina. Tvo fyrir augu og tvo fyrir munn.
Hriiiikalega er gaman að leika sér í snjónum! Við rúlluðum okkur niður brekkuna þangað til okkur varð óglatt og sáum stjörnur. Þá rúlluðum við okkur aðeins meira. Svo náðum við í snjóþotur og renndum okkur niður. Mér fannst það nú hálf klént, náði miklu meiri hraða þegar ég var að rúlla mér.
En nú erum við komin inn í hlýjuna og ég ætla að búa til heitt kakó, vefja mér inní teppi og sötra kakó og horfa út í snjóinn.