Sunnudagur, 21. desember 2003
Tóti var alveg hissa þegar hann sá jólagjafafjallið sem hafði myndast á stofugólfinu þegar við vorum búin að pakka inn jólagjöfunum í ár. "Ég er búin að segja öllum að við gefum engar gjafir í ár, ég kem af fjöllum" sagði hann. Var auðvitað búin að gleyma þessu smáræði sem við keyptum í sumar til að gefa í jólagjafir.
Mér finnst gaman að gefa jólagjafir. Tóta finnst það líka gaman en á erfitt með að segja það uppátt því það eru auðvitað smáborgarar sem gefa jólagjafir. Smáborgarar eins og við Tóti.
Annars erum við Tóti engir smáborgarar þegar vel er gáð.
Ég fletti upp orðinu "smáborgari" á Vísindavef Háskólans og samkvæmt þeirra túlkun á fyrirbærinu þá á orðið smáborgari ekki við okkur. Ekki getum við talist snobbuð heldur. Samt.. þarf að velta því betur fyrir mér. Ætli ég snobbi fyrir einhverju?
Komumst hinsvegar að því í gær að við gleymdum öllum börnum undir tveggja ára í gjafakaupunum. Ekki hundrað í hættunni... ennþá tveir dagar til jóla!