www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Í skóinn
Þriðjudagur, 16. desember 2003

Í morgun vakti mig grátur sem nísti í gegnum merg og bein. Doddi var að gráta.

"Jólasveinninn gaf mér ekki broskalla hjólabrettið" grét hann.

Þetta byrjaði allt í gær, í Úlfarsfelli þar sem ég var með krökkunum að versla jólapappír. Við afgreiðsluborðið var standur og á honum voru lyklakippur með alls kyns lyklakippum. Ein tegundin voru lítil hjólabretti. Dodda langaði í eitt og Jóhönnu langaði í eitt en ég vildi ekki kaupa þær handa þeim.

"Við getum skrifað jólasveininum bréf og beðið hann að gefa okkur þær í skóinn" sagði Jóhanna. Fljót að hugsa stelpan!
Doddi var í skýjunum og Jóhanna lofaði að hjálpa honum með bréfið. Þegar hann fór að sofa var hann sannfærður um að jólasveinninn myndi gefa sér svona lyklakippu eins og hann langaði í, alveg sama þótt ég útskýrði fyrir honum að stundum þarf jólasveinninn að fara "aftur heim" til að ná í það sem krakkarnir bæðu hann um. Sjís.. þarna opnaði Jóhanna Pandora's box.

Í morgun huggaði ég Dodda og minnti hann á að kannski var jólasveinninn ekki með svona dót í pokanum akkúrat þennan dag. Hann lét huggast.

Seinnipartinn hringdi Tóti í mig og spurði hvernig ég ætlaði að takast á við verkefni dagsins, að finna broskalla hjólabretti handa Dodda. Ég sagðist myndi redda því og hann lét sér það nægja. Þegar ég sótti hann í vinnuna komst ég hinsvegar að því að Tóti hélt að Doddi vildi frá real life size hjólabretti í skóinn og vildi vita hvernig ég ætlaði að redda því. Hann var ekkert lítið fegin þegar ég sagði honum að um lyklakippu væri að ræða.

Mikið rosalega verður Doddi kátur á morgun, og mikið rosalega var ég fegin að það var ein broskallalyklakippa eftir í dag í Úlfarsfelli. Jólasveinninn verið í vondum málum ef þær hefðu verið búnar...

Það hefur hinsvegar verið úrskýrt fyrir Dodda að af því að jólasveinninn þarf að fara til svo margra krakka með eitthvað fallegt í skóinn að hann getur ekki gefið neitt sem kemst ekki fyrir í skónum... svona til að næsta bréf verði ekki beiðni um bíl eða bát... -life size.


| anna | 20:17 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web