Ég hlakka svo til..
Sunnudagur, 07. desember 2003
Núna, þegar ég veit hvað Doddi fær í jólagjöf frá afa Úlf get ég hreinlega ekki beðið ég hlakka svo til jólanna. Úff alveg!
Það er playmó og það er æðislegt! Við Tóti gefum Dodda "matching" gjöf, þ.e. í sama playmó setti. Ég veit bara ekkert skemmtilegra en að horfa á krakkana mína opna gjafirnar sínar um jólin. Ég er miklu verr haldin spenningi en þau. Hrikalegt alveg.
Jóhanna er hinsvegar somewhat of a head ache. Það þýðir ekkert að gefa henni Barbie, dúkkur eða svona girlie stuff. Hún vill fá japanskar teiknimyndasögur (á ensku), kristals kúlu, fallega steina eða alvöru áttavita.
Fyrir mörgum árum fékk Júlía systir playmó æði og keypti sér fyrir alla afmælispeninga playmó í viktoríanska playmó-húsið. Þetta var þegar hún var á aldrinum 11 - 13 ára. Skyndilega missti hún áhuga á playmó og gaf Jóhönnu allt interior draslið í húsið. Það var þess vegna sem við ákváðum að splæsa í viktoríanska húsið ein jólin.
Jóhanna hefur leikið sér sex sinnum með þetta hús. Það kostaði heilar sextán þúsund krónur þegar við keyptum það á tilboði en það hefur reynst betri fjárfesting en bréf í Decode þar sem það kostar núna tuttugu og sex þúsund. Skil ekki af hverju við keyptum ekki tvö....
Sem betur fer fæddist Doddi og hann er miklu duglegri að leika sér með húsið, svo duglegur að við erum löngu hætt að vera með móral yfir því að hafa splæst í það. Ég veit að það sem hann fær í jólagjöf frá afa Úlf verður instant hit. DJÖFULL HLAKKA ÉG TIL JÓLANNA! Andskotinn alveg...
Ég fór í dag í Nexus og keypti einn hluta jólagjafarinnar hennar Jóhönnu. Djöfull er Nexus flott búð. Af hverju er ég ekki milli? Ah.. líklega vegna þess að ég kaupi leikföng fyrir alla peningana mína...
Í dag fórum við í bíó að sjá Elf (með ensku tali). Ég mæli með þessari mynd (með ensku tali). Ég táraðist bæði úr hlátri og úr geðshræringu. Fallegur boðskapur og skemmtilegur fíflagangur (með ensku tali). Fær fjórar stjörnur hjá mér. Mæli með að allir fari að sjá Elf (með ensku tali) til að komast í jólaskapið!
Oh ég hlakka svo til jólanna...