Mánudagur, 15. desember 2003
Innan skamms kemur sá tími sem ég get slappað af og hætt að fara úr náttfötunum á morgnanna til að klæða mig í vinnufötin, en það eru ennþá nokkrir hektik dagar eftir.
Í kvöld kom hinsvegar til mín ábyrgðarbréf og það um svipað leyti og Survivor var að byrja. Ég ákvað að taka á þessu með æðruleysi og buzzaði aumingja bréfberanum inn í stigaganginn án þess svo mikið sem hugsa um að mig langaði að læsa hann inni á baði og svelta hann yfir jólin ef bréfið væri frá lögfræðingi. Því svoleiðis þankagangur hæfir bara sjúkri manneskju.
Sjís.. ég verð að hætta að lesa um fjöldamorðingja á netinu.
Bréfið var frá Hong Kong þar sem frændi minn býr (not) og vildi svo skemmtilega til að hann var að selja dót á ebay sem ég keypti en þegar við föttuðum að við værum ættingjar ákvað hann að senda mér það sem gjöf.
Inní þessu bréfi eru jólagjafir bæði til Dodda og Nónu frá þessum fjarskyldu ættingjum okkar í útlöndum. Þær eru ekki stórar og ekki dýrar.. en boy.. þeim verður vel fagnað. Ég er svo glöð að hafa fengið þær fyrir jól, sérstaklega í ljósi þess að ég borgaði fyrir þær í byrjun síðustu viku.
Þetta glæðir í brjósti mér nokkra von um að gjöfin hans Tóta, sem er heldur ekki dýr eða stór, komist til landsins fyrir jól. Best ég setji það í hendur mínum æðri mætti sem í þessu tilfelli eru póstsamgöngur á milli okkar og USofA.
Eins og góðum ebay-ing sæmir settist ég niður til að skilja eftir positive feedback hjá seljandanum og sá að hann var búin að setja positive feedback hjá mér. Það er orðið nokkuð langt síðan ég hef kíkt á mitt eigið feedback á ebay og mér fannst merkilegt að lesa það. Hér eru nokkur quote úr ebay feedbackinu mínu:
"Nice & Friendly!!! "
"Great Transaction, friendly and quick communincation!! A+ Greatings to Iceland!"
"FAST PAYMENT. SUPER WONDERFUL PERSON. THANK YOU. HIGHLY RECOMEND. A++"
"Fast prompt and friendly.... Thanks "
"Alles bestens, jederzeit gerne wieder!"
Ég er friendly, ég er fast..... wonderful person sem hugsar um að kvelja póstbera bara af því að hann er með ábyrgðarbréf.
And now... back to serial killers.
[Ég verð að minnast á... að á óvæntan og furðulegan hátt á ég Sláturfélagi Suðurlands að þakka það að ákveðið verkefni sem ég er að vinna í verður nákvæmlega eins og það á að vera. Takk fyrir hjálpina frábæra starfsfólk SS!]