Miðvikudagur, 03. desember 2003
Ég var að horfa á Kastljós og verð að segja að ég er hjartanlega sammála lækninum sem segir box vera ofbeldi. Í mínum huga þarf ekki annað en heilbrigða skynsemi til að komast að þeirri niðurstöðu.
Ég hef verið á móti þessari iðju frá því ég sá fyrstu Rocky myndina sem krakki og hef aldrei notið þess að sjá menn keppast við að meiða hvern annan. Finnst ekkert karlmannlegt að vera með blátt og marið andlit eða líkama.
Ég sé hinsvegar ekkert að því að lemja í svona boxpúða til að halda sér í formi. Það er þó ekki eitthvað fyrir mig því ég brýt bara neglurnar á mér.
Þegar ég tilkynnti það yfir stofuna að ég væri á móti því að þetta væri leyfilegt á Íslandi sagði Tóti að það skipti engu máli, þetta kæmi okkur ekki við. En þetta kemur okkur við. Það eru ungir strákar sem fara útí að keppa í þessum barbarisma og hvað eigum við að segja við okkar unga strák ef hann ákveður að fara að keppa í boxi sautján ára gamall? Eigum við að svipta hann forræði og loka hann inni? Útskýra fyrir honum að hann geti orðið eins og gamalmenni með heilabilun fyrir aldur fram? Hvaða sautján ára strákur trúir því á þessum árum sem krökkum finnst þau vera ósigrandi?
Ég vil banna box á Íslandi. Þeir sem njóta þess að sjá menn berja á hvorum öðrum geta bara keypt sér miða til Vegas, nú eða gerst áskrifendur af "bestu" íþróttastöð í heimi.
Ég vorkenni þeim ekkert.