Þriðjudagur, 02. desember 2003
Það er allt gott að frétta af Áströlsku runnunum mínum sem ég setti í pott og útí glugga. Ég held í þá trú að ef þeir meika veturinn verði þeir fullvaxta í sumar. Ekki raunveruleiki.. heldur trú.
Júlía systir kom í heimsókn í gær og málaði listaverk á meðan ég horfði með viðbjóði á Survivor. Þetta helvítis kvikindi hann John. Djöfull.
Áður en við horfðum á Survivor horfðum við systurnar á Bansai og veðjuðum sígarettum. Júlía stóð uppi sem ótvíræður sigurvegari með eina sígarettu. Djöfull.
Þegar Júlía var búin að mála málverkið tók hún mig í andlitsdekur. Ég hélt í alvöru á tímabili að ég hefði dáið og farið til himna. Fyrst skammaði hún mig auðvitað fyrir að eiga bara Nivea andlitshreinsivörur en var fljót að finna til ýmislegt dót til húðhreinsunnar í eldhússkápunum mínum.
Fyrst smurði hún einhverri drullu framaní mig og ég lá í sófanum með sæng og hún sagði mér slúður. Svo þreif hún drulluna framanúr mér og setti á mig maska. Á meðan maskinn var framaní mér sagði hún mér meira slúður. Þegar hún var búin að þvo maskann framan úr mér fór hún að nudda á mér andlitið og það var einmitt þá.. sem ég hélt að ég hefði dáið og farið til himna. Þarna var hún búin með slúðrið svo hún fór bara að segja mér sögur. Ahhhh... ég þarf að eiga þjón.
Ekki bara einn.. heldur marga.
Takk fyrir dásamlegt kvöld Júlía!
ps. Tóta.. fátækt þarf ekki að koma í veg fyrir myndskreytingar.
Prufaðu þessa slóð: google myndaleit
Sérðu eitthvað sem þú þekkir?