www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Það er algjör vitleysa..
Föstudagur, 12. desember 2003

..að reykja

Ég elskaði þetta lag með Ruth Reginalds þegar ég var lítil og núna er ég systematískt að heilaþvo börnin mín með því þar sem ég á safndiskinn sem Ruth var að gefa út og er með hann í bílnum á repeat stillt á Tóm Tjara.

Hræsni, þar sem ég reyki? Nei. Ég veit alveg hvað það er óhollt að reykja og mér finnst það sjálfri ógeðslegt. (Best ég skrifi Dr. Phil og væli í honum að laga mig) En hvað sem því líður finnst mér þetta lag snilld.

Þar sem ég er mótfallin því að hafa íslensk lög í af nýjum diskum á vefnum (þótt lögin séu eld gömul) ætla ég að láta duga að hafa brot af laginu hérna » Hluti af Tóm Tjara «

Mörgum finnst ég kannski skrítin þegar ég stend úti í rigningunni, að reykja, og raula:

Þeir sem að reykja í peningum kveikja
hvern einasta dag
Það er tóm tjara, já betra er að spara
og bæta sinn hag
Að reykja er ósiður sem dregur mann niður
og mér finnst það ljótt
Þú verður grár og gugginn, litlaus sem skugginn
það sést á þér fljótt

Það er algjör vitleysa
að reykja
þú brennir peninga
með því að kveikja
í sígarettunni
ó já
Þú brennur heilsunni
minna má nú sjá!
Þú skemmir lungun fljótt í þér
og mengar loftið fyrir mér

Það er algjör vitleysa
að reykja
þú brennir peninga
með því að kveikja
í sígarettunni
ó já
Þú brennur heilsunni
minna má nú sjá!
Þú skemmir lungun fljótt í þér
og mengar loftið fyrir mér

-en mér finnst það fullkomlega eðlilegt og ber vitni um að ég er vel upplýst manneskja.


| anna | 17:51 |
comments

AAAAAHAHAHAHA! Það er algjör vitleysa... en stundum er maður bara vitlaus!

Nr. 1 | posted by: Júlía | 12.12.2003 | 18:15:23 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web