www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Tjékkin in
Laugardagur, 29. nóvember 2003

playlist2.gifAlltaf gaman að taka til við góða tónlist. Hitti nágrannann minn í gærkvöldi þegar ég var á leiðinni út á leigu að skila Dreamcatcher. Hann spurði hvort ég ætlaði að fara eitthvað út um kvöldið. Neibb. Ég fer fokking aldrei neitt. Mætti halda að ég væri hlekkjuð við heimili mitt.

Auk þess er ég búin að vera með helvítis nefrennsli en ég er samt ekki veik. Ég eipa ef ég verð kvefuð yfir jólin. Ekkert eins leiðinlegt eins og að finna ekki bragðið af jólamatnum og pússla með hor lekandi úr nefinu. Ömurð.

Djöfull hlakka ég til að pússla um jólin...


| anna | 17:54 |
comments

Er ekki komin einhver þreyta í tilvist einnar konu þegar viðkomandi hlakkar til að fara að pússla einhverja lönguvitleysu um jólin? Spurning að munstra sig bara með Hönnu Johannessen í fangahjálpina og reka súpuvagn fyrir rónana á aðfangadagskvöld í staðinn.
Ég er ekkert að dæma þitt líf en þetta minnir mig smávegis á þegar ég er farin að hlakka til að lesa Ofvitann í sexþúsundasta skiptið.
Þá fer ég að spá í hvort það sé eitthvað um vitrænt innihald í minni tilvist...... En annars, total respect. Þú ert frábær bloggari. wave

Nr. 1 | posted by: Þórdís | 29.11.2003 | 20:58:05 | [+] |

Respect sömuleiðis! Ein spurning.. hvað gerðir þú til að breyta þessu munstri að lesa Ofvitann endalaust? Kannski á ég í tilvistarkreppu.

Nr. 2 | posted by: anna | 29.11.2003 | 21:59:24 | [+] |

Éghellti mér út í ævisögurnar og rauðvínsdrykkju með. Oscar Wilde, Ingrid Bergman. Kristmann Guðmundsson. Augljóslega sjúklegt. Lendi samt ekki í lóbótómíu útaf því.

Nr. 3 | posted by: Þórdís | 29.11.2003 | 22:10:36 | [+] |

Ég held að lóbótamía sé ekki lausn á mínu vandamáli. Nema kannski er það lausnin! (LJÓSAPERA)

Ég hef prufað að flytja hingað og þangað en það hefur ekki virkað því alltaf tek ég sjálfa mig með.. en ég hef ekki prufað að fara bara til læknis og láta fjarlægja sjálfa mig með skurðaðgerð!

Þetta er auðvitað snilldarhugmynd. cool

Hvað ætli maður þurfi að gera til að fá svona heila skurð aðgerð? Detta á hausinn? Hvað gerði ég nú við hamarinn...

Nr. 4 | posted by: anna | 29.11.2003 | 22:29:11 | [+] |

Þetta er náttúrulega soldið dilemma. Það er erfitt að vera bloggari og gera aldrei neitt sem hægt er að skrifa um, en verra að vera bloggari sem gerir allan andskotann og hefur ekki tíma til að blogga...

En pússluspil eru bara mannbætandi. Þú ættir að prófa (þegar þú ert búin að klára ebay-fenginn) pússluspilin frá Magna á Laugaveginum. Þar hefurðu mynd framan á kassanum sem er ekki myndin sem þú átt að pússla heldur eitthvað sem fólkið á pússlmyndinni er að horfa á. Ég veit að þessi setning er illskiljanleg, en ég nenni ekki að vanda mig við útskýringar núna. Kíktu bara til Magna, he´ll tell ya.

Nr. 5 | posted by: Atviksorða-Anna | 30.11.2003 | 23:45:32 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web