www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
The Voice Within
Föstudagur, 21. nóvember 2003

The Voice WithinÉg kveiki stundum á popp tv til að sjá hvað er í gangi in the outside world og í dag sá ég myndband sem mér fannst mjög merkilegt. Aðallega vegna þess að það er alveg óklippt.

Mér finnst þetta myndband eitt flottasta myndband sem ég hef séð og eiginlega bara vegna þess að þetta er ein taka. En mér finnst líka svo margt.

Mér finnst t.d. skrítið að Femínistar setji út á fegurðarsamkeppnir. Ég hefði haldið að það væri sjálfsagður réttur kvenna í frjálsu landi að taka þátt í keppni um útlit. Þó að ég kæri mig ekki um að taka þátt í slíkri keppni þá finnst mér ekkert að því að aðrar konur geri það. Ég reikna að sjálfsögðu með því að þær taki sjálfar ákvörðun um þáttöku, ekki at gunpoint.

Ef ég fengi að velja, þá myndi ég t.d. frekar vilja taka þátt í fegurðarsamkeppni en að ganga með blæju fyrir andlitinu.

Hvað vændiskvenna frumvarpið varðar, ég hef reyndar ekki kafað mikið ofaní það mál en ég held að þetta frumvarp leysi ekki neitt. Ég held að það sé töluvert skárra að lögleiða þetta bara, koma upp ríkisreknu vændishúsi og best að rukka virðisauka og tilheyrandi.

Það koma alltaf til með að vera til vændiskonur. Hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Er þá eitthvað að því að skapa þeim grundvöll til að stunda sína atvinnu í "vernduðu" umhverfi?

Æi ég veit það ekki... ég held bara að með því að gera kúnnan brotlegan þá verði þetta bara meira leyndó en það er í dag.

Þetta var my voice within fyrir daginn í dag...


| anna | 12:39 |
comments

Það eru nú einu sinni eitt af rökum fegurðasamkeppnishaldara að enginn sé neiddur til að taka þátt, en stelpur á þessum aldri (sem ku vera, að sögn kunnugra, besti tími lífsins og jafnvel blómi þess) eru sjaldnast að pæla í því hvort þær komi til með að skammast sín fyrir athæfið síðar meir eður ei. Ég meina bara hvað er verið að keppa um? Væri ekki bara nær að kalla þetta "fegurðarsýningar samkvæmt vestrænum staðli hvítra manna" Ég segi því nei, en er jafnframt ekkert að stressa mig á tilveru fegurðarsamkeppna því þær eru einhvern veginn ekki svo áríðandi issjú in the scheme of things. Kannski er maður bara sekur um sofandahátt á versta stigi.

Nr. 1 | posted by: Atviksorða-Anna | 21.11.2003 | 21:24:33 | [+] |

Af hverju ætti einhver að skammast sín fyrir að hafa verið í fegurðarsamkeppni? There are far worse things.

Er ekki bara aldurstakmark málið? En ég er sammála þér með að mér finnst þetta ekki vera issjú. Það er kannski málið. I don't get the fuss.

Ég varð samt ekki vör við nein mótmæli frá neinum vegna herra Ísland og velti fyrir mér: "Af hverju ekki?" Er allt í lagi að karlmenn "keppi" í fegurð, en "mannsal" þegar konur keppa í sama field? Eins og ég sé þetta þá eru þær ekki að þessu at gun point og með þessar barn ungu stúlkur, 13 - 15 ára.. eiga þær ekki foreldra? Maður verður jú ekki sjálfráða fyrr en maður er sextán. Mætti hækka það mín vegna upp í 27 ára, sem er sá aldur sem fólk er að flytja að heiman í dag hvort sem er...

Nr. 2 | posted by: anna | 21.11.2003 | 21:34:27 | [+] |

Má ég rétt aðeins bæta því við að ég er ekki að meina að þær þurfi að skammast sín fyrir að hafa tekið þátt í svona sýningu per se, heldur því að hafa lent á grunnhyggninnar ólgusjó.

Nr. 3 | posted by: Atviksorða-Anna | 22.11.2003 | 11:12:16 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web