www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ófyrirséð vídeógláp
Sunnudagur, 30. nóvember 2003

naked_weapon.gifÞar sem matarboðið endaði snemma í gær og af því að við erum með uppþvottavél myndaðist ófyrirséður frítími í gærkvöldi sem við nýttum í vídeógláp.

Tóti náði í myndina Naked Weapon og The Hot Chick.

Við byrjuðum á heitu píunni og ég verð að segja að mér finnst hann Rob Schneider alveg ógeðslega fyndinn. Ég hélt að myndin Naked Weapon væri ein af þessum myndum sem er auglýst með 10 mínútna löngu sýnishorni á undan vídeó myndum, svona trailer sem skilur ekkert eftir og maður þarf í raun og veru ekki að sjá myndina eftir að hafa séð trailerinn. En ég hafði rangt fyrir mér. Þetta er ferlega góð Hong Kong skjóti, karate, drepi-mynd.

Mæli með henni.


| anna | 14:06 |
comments

Oh My GOD! ég VAR að leiga The Hot Chick! Búin að vera að deyja mig langar svo að sjá hana síðan hún var í BÍÓ og loksins núna leigi ég mér hana (kærastinn að fara að hitta vin sinn). Spúkí!

Nr. 1 | posted by: Júlía | 30.11.2003 | 19:20:19 | [+] |

OH... finnst þér The Hot Chick ekki fyndin?

Nr. 2 | posted by: anna | 30.11.2003 | 20:43:23 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web