www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ofbeldi
Fimmtudagur, 13. nóvember 2003

restaurant.jpgÉg fann til með Lindu þegar hún var í viðtali í þættinum Fólk í gær og beygði af. Það er örugglega ekki auðvelt að rifja svona lagað upp.

Þessi stutta auglýsing setur hlutina í perspective...

Auglýsingin er 2.181 KB og í mpeg formi. Restaurant


| anna | 19:03 |
comments

Púff ! sad

Nr. 1 | posted by: Hexia | 14.11.2003 | 9:17:31 | [+] |

Ég get ekki hlustað á rödd Sigríðar umsjónarkonu Fólks. Fleiri sem stríða við sama vanda? Missti því af Lindu tárast ofan í vatnsglasið. Tengdapabbi kom rauðeygður upp eftir þáttinn og sagði okkur fréttirnar, og nú er mínu heimilisfólki spurn: var þetta real eða publicity stunt? Það er jú að koma út bók...

Svona hugsum við ljótt á þessu heimili.

Nr. 2 | posted by: Atviksorða-Anna | 14.11.2003 | 10:10:31 | [+] |

Ég er alveg með ofnæmi fyrir röddini í Pirrý, get ekki lengur heyrt svo mikið sem óm af henni.
Einhvernvegin svona na na na na na gegnum nefið.
Líka með ofnæmi fyrir Lindu P og öðrum vælukjóum sem gera allt til að fá athyggli.
Það er vælubókaflóð í ár ekki skemmtilegt það. kveðja gua

Nr. 3 | posted by: gua | 14.11.2003 | 11:44:30 | [+] |

Sirrý fer ekkert í taugarnar á mér þó ég verði reyndar að viðurkenna að það er hending að ég horfi á þátt hjá henni.

Var þetta real eða publicity stunt? Ég trúi ekki að fólk geri sér þetta að leik og efast um að Linda hefði kosið að fara svona í kerfi ef hún hefði átt val. Linda hefur aldrei þurft eitthvað svona til að fá athygli. Það er nóg að hún sé á landinu, hvort sem hún er að gefa út bók eða ekki. Ef Linda gerði þetta hinsvegar af ásetningi til að fá smá auka athygli ætti hún að fá næstu markaðsverðlaun Ímark eða Edduna fyrir besta leik í raunveruleikasjónvarpi.. tíhíhí Ég hugsa nú svo ljótt að ég hef ekki nokkra trú á að Linda hafi nógu mikla leikræna hæfileika til að feika þetta... evil

Þetta eru vælukjóa-jól. Lesum bara Harry Potter og gefum skít í hitt. Enda ekkert að marka ævisögur fyrr en 50 árum eftir dauða þeirra sem þær fjalla um. Makes sense...

Nr. 4 | posted by: anna | 14.11.2003 | 12:03:16 | [+] |

hahahaha já ég er ekki viss um að hennar rödd henti vel í svoleiðis.. en hún fer samt ekki í taugarnar á mér. Mér fannst hún meira að segja redda sér alveg brilliantly þegar Linda klökknaði. Merkilegt að hún sé með rödd sem pirrar suma svona. Ætli ég heyri einhverja aðra tíðni en þið kannski?

Nr. 5 | posted by: anna | 14.11.2003 | 14:34:44 | [+] |

Ég er á eftir í bæjarslúðrinu, hvað er að gerast bissnesswise hjá herra Franklín? [eyebrows]

Nr. 6 | posted by: Atviksorða-Anna | 14.11.2003 | 21:19:19 | [+] |

Síma sex þjónusta heitir það. Ójá.

Nr. 7 | posted by: anna | 15.11.2003 | 0:09:45 | [+] |

Datt það í hug en þorði ekki að vona... Dóttir mín vill að ég fari að vinna í sjoppu "eins og áður en ég fæddist og varð til", en sennilega væri nær að sækja um þarna. Maður fengi þá allavega einhver laun til að greiða niður símnotkunina hjá kallinum. Ég bara skil ekki af hverju reikningurinn er alltaf svona hár. wave

Nr. 8 | posted by: Atviksorða-Anna | 16.11.2003 | 10:48:41 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web