www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ömurð
Sunnudagur, 30. nóvember 2003

Ég var að koma heim áðan af myndinni Cold Creek Manor. Þvílík ömurð. Sjitt. Langt síðan mér hefur leiðst svona í bíó.

Við vorum ca 8 í salnum og þar af einn hálfviti sem sat með vinum sínum aftast. Ég segi hálfviti því síminn hjá viðkomandi hringdi og þegar hann var búin að blaðra við einhvern í símann, svo allir heyrðu í ca fimm mín, kallaði einhver á hann: "Viltu fara og tala í síman frammi? Er ekki í lagi með þig?"

Nei, ekki hætti vinurinn að blaðra. Það ætti að banna svona fólki að fara í bíó!

Myndin er ógeðslega illa leikin, Sharon Stone ætti nú bara að snúa sér alfarið að fíkniefna neyslu og hætta að reyna að leika. Konan er glötuð. Ekki er Dennis Quaid meira sannfærandi. Fyrirsjáanlegt og handónýtt plott... æi.. ég nenni ekki að eyða orðum í þetta rusl.

Leiðinleg mynd, hálfviti í bíó. Það er virkileg þörf á hraðspóli þegar svona myndir eiga í hlut.

Cold Creek Manor fær skull. skull.gif


| anna | 20:50 |
comments

Þú hefðir átt að fara að sjá Mystic River, þar er afbragðsgóð mynd á ferð. Ég meina - Sean Penn the sexy, Kevin Bacon hefur alltaf skilað sínu þó maður sjái hann fyrir sér í Footloose, og Tim Robbins! maður lifandi, Tim Robbins var alveg geggjaður. Honum tókst að höndla hlutverkið þótt hann minnti mig nú óneitanlega alltof mikið í útliti á óþolandi vin sem pabbi átti. Hann gat náttúrulega ekki vitað það greyið...

Verð að viðurkenna að ég man ekki nöfnin á leikkonunum, en þær voru samt í myndinni. thumb up

Nr. 1 | posted by: Atviksorða-Anna | 1.12.2003 | 0:10:30 | [+] |

Nah.. Tóti er búin að sjá hana. Hann þurfti nýja mynd til að skrifa um. Hann er nú samt sammála þér, fannst hún góð. Kannski maður skelli sér á hana bara.

Næsta mynd sem ég fer á í bíó verður samt líklega Gothika. Get ekki beðið eftir að hún byrji.

Nr. 2 | posted by: anna | 1.12.2003 | 0:16:05 | [+] |

Hvaða myndir verða í bíó árið 2005. Líklegast að þá komist ég næst í bíó. Hver veit nema maður nái Harry Potter um næstu jól og Star Wars um þar næstu......

Nr. 3 | posted by: Edda | 1.12.2003 | 12:50:46 | [+] |

Blessuð vertu, þú tekur þetta bara á vídeó, þótt ég mæli ekki með Cold Creek Manor. Gæti samt verið ágætis mynd ef þú tekur parkodin forte og pektólín áður en þú byrjar að horfa wink

Nr. 4 | posted by: anna | 1.12.2003 | 13:04:34 | [+] |

Já vídeóið og DVD spilarinn eru góðkunningjar mínir þessa dagana. Ég get vel skilið þetta með Parkódínið (dugar sennilega að vera venjulegt en ekki forte) en hvernig kemur Pektólínið inn í myndina. Veldur Cold Creek hósta hjá áhorfanda? Nafnið gefur það að einhverju leyti til kynna..... Stundum verkar vel að fá eitthvað ógleðistillandi fyrir slæmar myndir. Annars reyni ég að horfa ekki á neitt sem heitir e-ð manor nema að Hercule Poirot komi fram í myndinni. shy

Nr. 5 | posted by: Edda | 1.12.2003 | 14:17:23 | [+] |

Jah.. nú veit ég ekki með þig.. en pektólín hefur hrikalega slævandi áhrif á mig. Auk þess að hætta að hósta virðist pektólín hægja á allri líkamsstarfsemi. Ég sit bara og stari daufum augum fram fyrir mig og slefa. Mér datt bara í hug að í svoleiðis ástandi gæti þessi mynd verið algjört meistaraverk. colgate

Nr. 6 | posted by: anna | 1.12.2003 | 14:28:44 | [+] |

Verð greinilega að prufa Pektólín næst þegar ég vil vera úti á þekju - og öll jólaboðin framundan! Annars virðist ég alltaf bara einfaldlega sofna þegar mér leiðast bíómyndir sbr. Lord of the rings í lúxussal..... drunk

Nr. 7 | posted by: Edda | 1.12.2003 | 15:13:47 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web