Þriðjudagur, 04. nóvember 2003
Við borðuðum allt lambalærið sem ég eldaði í gær, upp til agna, svo það verður engin bixí matur í kvöld... bara lasanja. Ég verð alltaf hálf hrædd þegar ég sé Tóta borða svona mikið og óttast að hann muni springa, en ég borðaði svosem slatta sjálf. Lá á meltunni yfir Survivor eftir mat og þarf að slá á puttana á mér núna til að stelast ekki inn á Survivor síðuna til að sjá hver af þeim sem voru úti voru kosnir aftur inn í leikinn.
Þegar ég kom hinsvegar heim í hádeginu blasi við mér hræðileg sjón. Uppáhalds blómið mitt á gólfinu og mold út um allt. Það sem er óhugnarlegt við þetta er að plantan stendur uppá skenk í stofunni og fyrir framan hana eru tveir kertastjakar. Ef hún hefði dottið á gólfið hefðu þeir brotnað en þeir voru á sama stað og venjulega. Það er eins og einhver hafi tekið blómið upp og hent því í gólfið.
Þetta myndi ekki angra mig ef þetta væri ekki í annað skipti sem þetta kemur fyrir. Ég spyr: wazzzup? Hvað er með þetta blóm? Er það að reyna að fljúga? Á maður að henda svona blómum niður af svölunum til að kenna því þessa lexíu í eitt skipti fyrir öll?
Það sem er ennþá verra.. ég er orðin eins og mússí mússí kallinn í Fóstbræðrum nema ég kalla blómið mitt dúllusnúð. Ég sver.. mér er ekki við bjargandi.
OH MY GOD! KANNSKI ER PLANTAN AÐ REYNA AÐ FREMJA SJÁLFSMORÐ!