Sunnudagur, 16. nóvember 2003
Það skiptir engu máli þótt verslanir séu farnar að skreyta, sjónvarpsauglýsingar séu farnar að fjalla um jóladrasl, ég fer ekki í jólaskap fyrr en á þorláksmessu þegar tréð er skreytt og allt er orðið hreint. Þannig er ég bara.
Ég notfæri mér staðbundna umhverfisblindu til að jólasjúkir einstaklingar fari ekki í taugarnar á mér og laglaus börn í auglýsingum. Eða er ég orðin svona æðrulaus? Hver veit.
Það er sunnudagur og ég nenni engu. Ég er búin að taka til og ætlaði að vera rosa dugleg að html-a en ég bara nenni ekki nokkrum sköpuðum hlut. Hvað gerir maður þá? Kveikir á sjónvarpinu?