www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Hrekkjavaka
Laugardagur, 01. nóvember 2003

hrekkjavaka.jpg

Það var ógó gaman í gær á hrekkjavökunni okkar. Krakkarnir máluðu hryllings piparkökur af mikilli innlifun og það var mikil stemming að horfa á Casper the friendly ghost.

Eins og sjá má á myndinni var ein norn, einn Grim reaper, Ninja, Hermaður og Herramaður. Svo klæddi ég mig upp sem Catwoman við mikinn fögnuð því litli hermaðurinn heldur mjög svo upp á Batman og fannst þetta alveg magnað, því hann hefur ekki hitt Catwoman áður. Hinum krökkunum fannst líka ekkert leiðinlegt að hitta Catwoman og þegar ég hvæsti á þau skríktu þau af fögnuði.

Þetta var reyndar ekki vel undirbúið hjá okkur, allt á síðustu stundu en við erum búin að ákveða að halda þetta árlega fyrir krakkana og næst verður þetta betur undirbúið. Þá verðum við búin að búa til köngulóa óróa og eitthvað fleira sniðugt. Förum kannski í hryllings leiki og segjum gamlar íslenskar draugasögur. Þetta verður auðvitað að vera innan vissra skynsemismarka þar sem tilgangurinn er ekki að hræða úr greyjunum líftóruna heldur bara hafa gaman.


Litlu strákarnir entust nú ekki lengi yfir Casper og fóru fljótt að leika við Catwoman og svo, þegar Catwoman var orðin þreytt, fóru þeir að leika sér inn í herbergi. Tættu sig auðvitað úr búningunum.

Þegar krakkarnir voru farnir slöppuðum við Tóti af og horfðum á the 25th hour, sem mér fannst alltílæ.

Í kvöld er ég svo að fara í partý með fyrrverandi skólafélögum. Ég mun nú samt ekki fara sem Catwoman hehehe

Það er það eina sem er jákvætt við að vera saumakona. Ef mann langar í föt eða búning sem fæst ekki.. þá saumar maður það bara...

120_2090-2.jpg







| anna | 14:30 |
comments

Ég hef séð þig í kattvúmen búningnum.... varstu að klæða þig upp fyrir pabbana ?

Þú minnir á Bryndísi Skran, skemmtir börnunum ða hátt sem pöbbunum líkar.

...það er satt sem sagt er, konur geta gert meira en eitt í einu

Nr. 1 | posted by: Dorinn | 1.11.2003 | 16:21:37 | [+] |

hehehehe það var bara einn pabbi á svæðinu, en honum leiddist ekkert. wink

Nr. 2 | posted by: anna | 1.11.2003 | 16:25:40 | [+] |

grrrrr...purrrr..mjámjá, þetta er náttúrulega bannað.

Nr. 3 | posted by: Þór | 9.11.2003 | 17:47:49 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web