www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
DOH!
Mánudagur, 03. nóvember 2003

Ég er nú algjör fokking snillingur. Ég sat hér með kókómjólk og var að fá mér sopa þegar síminn hringdi. Þegar ég svaraði var ég ekki búin að kyngja kókómjólkinni svo ég svaraði svona: "Inter.. grr gulp.. hóst, hóst Anna, afsakið".

Maðurinn á hinum enda línunnar: "Þú þarft að kyngja áður en þú svarar"

Sjís.. hvað maður er glataður.

Ég fór heim í hádeginu og setti lambalæri inní ofn. Við vorum of upptekin til að borða sunnudagsmatinn í gær, svo ég elda hann bara í dag. Ég hafði 100° heitt í ofninum og hlakka til að borða lambalæri í kvöld. Ennþá meira hlakkar mig til að borða bixí matinn annað kvöld!

Ég er að velta því fyrir mér hvort ég eigi ekki að búa til lasanja fyrir mánuðinn fyrst ég kem til með að vera inní eldhúsi hvort eð er á eftir. Svei mér þá.. í gær, þegar ég var að horfa á the practise þá fékk ég svo hræðilega mikla löngun í að borða lasanja að ég átti gjörsamlega bágt! Held ég verði að græja þetta í kvöld svo ég geti átt neyðar-lasanja í frystinum næst þegar ég fæ svona óstjórnlega löngun.

Annars.. djöfullinn! Nú langar mig í lasanja! Fokk... ég held ég verði að búa það til á morgun ef ég á að borða eitthvað af þessu læri... hvað er að manni þegar maður fær svona craving?


| anna | 16:02 |
comments

Ólétt? smile

Nr. 1 | posted by: beggi dot com | 3.11.2003 | 17:27:16 | [+] |

Eftir þetta eina árlega skipti???? laughing

Jah.. ég er náttúrlega ekkert rosalega létt.. eða ekki eins létt og ég vil vera... en ég er ekki ólétt, óneeee colgate

Reyndar hitti ég gamlan skólafélaga um daginn sem er orðin einkaþjálfari og hann sagði, þegar ég var að kvarta yfir þyngd minni og leti: "Ég hef séð það miklu verra".

Ég tók þessu sem miklu hrósi! wink

Annars er ég að spá í að skrifa líka um hvað ég er þung og hvað ég borða. Ég held að það myndi vekja upp svo mikinn viðbjóð hjá sjálfri mér að ég gæti mögulega breytt matarræðinu.

Nr. 2 | posted by: anna | 3.11.2003 | 18:33:19 | [+] |

Já, þetta er skrítð með lasanjað. Ég var einmitt að elda lasanja um daginn og Þórhallur spurði mig "veistu um einhvern sem finnst lasanja EKKI gott?" og ég svaraði ... eftir svolítið hik ... "nei."
En ef þú pælir í því hvað er í þessu þá er ég ekkert svo hissa!
Kjöt, Laukur, Ítölsk krydd, pasta, tómat"sósa", mjólk, salt, pipar, sykur, hveiti, smjör. Þetta hljómar eins og kjötkaka! heit kjötkaka...
MMmmmm.... hefuru smakkað kjúklingabrauð? Ógeð, hreint Ó - Geð!

Nr. 3 | posted by: Júlía | 15.11.2003 | 22:46:53 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web