www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Bissí, bissí, bissí
Laugardagur, 22. nóvember 2003

Þessi dagur er búin að vera mjööög bissí. Byrjaði daginn á að fara á fund Íslensku menntasamtökunum sem ætla að bjóða allt að 50 börnum upp á nýtt námsefni í stærðfræði. Mér líst mjög vel á þetta hjá þeim og ætla að bjóða Jóhönnu upp á að taka þátt, með minni hjálp.. auðvitað.

Næst var það jólaföndur í Melaskóla. Þar á eftir fórum við að kíkja á glænýjasta meðlim vinahópsins sem er yndislegur lítill strákur, oh.. hvað hann er fallegur!

Núna er ég að hafa mig til fyrir fimmtugsafmælið sem við erum að fara í í kvöld. Á morgun er Karate mót hjá Jóhönnu. Sjís.. ég sem ætlaði að slappa af með tærnar upp í loft um helgina!


| anna | 18:11 |
comments

Það er aldeilis dagskrá hjá þér! Nóg að gera... Er þetta einhvers konar námskeið sem er í boði hjá Ísl.Menntasamtökunum? Var bara að velta því fyrir mér... Bestu kveðjur! wave

Nr. 1 | posted by: Gulla | 22.11.2003 | 18:25:30 | [+] |

Jah.. ég veit ekki hvað á eiginlega að kalla þetta. Já ætli það megi ekki kalla þetta námskeið. smile

Þetta er allavega nýtt námsefni sem mér finnst alveg þess virði að prufa. Ég er ekki ánægð með það námsefni sem íslensk stjórnvöld bjóða börnunum uppá. Fer í vont skap þegar ég heyri orðið þrautalausn! gnasher

Nr. 2 | posted by: anna | 22.11.2003 | 18:34:52 | [+] |

Já, alveg er ég sammála... fjölskyldan er stundum að drukkna í orðadæmum, þrautum og vitleysislegum mælingum á húsbúnaði og umhverfi fjölskyldunnar. Annars var eldri sonur minn með afskaplega góðan stærðfræðikennara í fyrravetur sem tókst að ná fínu jafnvægi á milli þessara þrautadæma og venjulegrar stærðfræði eins og flestir þekkja hana.
En þessi yngri á sífellt að vera að "teikna upp dæmið til að sjá betur fyrir sér..." - hann er sjálfur að verða brjálaður á þessu, vill frekar bara reikna alvöru dæmi í reikningsbók, eins og hann segir sjálfur. Hann er svo grýttur þessi gullni meðalvegur í kennsluaðferðum...

Nr. 3 | posted by: Gulla | 24.11.2003 | 14:09:56 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web