www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Aðventukrans og annað tilfallandi
Laugardagur, 29. nóvember 2003

jolafondur.jpg

Aðventan hjá okkur verður öðruvísi en allar aðventur áður fyrr. Ég er nefnilega búin að föndra aðventukransinn og fyrsti í aðventu er ekki komin. Þetta hefur aldrei gerst áður. Jóhanna er rosalega ánægð með mig því á sunnudaginn getum við kveikt á fyrsta kertinu við hátíðlega athöfn.

Ég er sjúklega eldhrædd og vildi aldrei hafa aðventukrans á heimilinu, eða þangað til einhverjum snillingnum datt þetta kramhúsa-thing í hug. Stór minnka líkurnar á stórbruna.

Ég man þegar ég var lítil gat ég ómögulega skemmt mér á jólafögnuðum þar sem jólaskreytingar voru því ég beið eftir því að einhver myndi kveikja í. Ég sver að ég hljóp á milli skreytinga að tékka á stadusnum. Ekki mikil gleði.

jolafondur2.jpgEn eftir að ég uppgötvaði kramhús-kertastjakana var ég komin í aðventuklúbbinn. Keypti mér krans og eitthvað smá skraut og hef svo bætt smátt og smátt við skrautið á hverju ári. Eftir ca 6 ár verður kransinn minn jafn ofhlaðinn og kransarnir hjá umsjónarmönnum stundarinnar okkar voru um daginn. Þ.e. ef ég hef ekki vit á að nota kannski ekki allt skrautið mitt.

Annars var dagurinn í dag hrikalega erfiður. Ég er hálf lúin. Ídol er glatað með þessa blóðmjólkurþætti sína en Ozzy klikkaði ekki.

Já! Í gær horfði ég á myndina Dreamcatcher. Loksins.

Þegar myndin var í bíó, fyrir ca hálfu ári síðan, fórum við Tóti í bíó að sjá hana. Eftir 20 mín af ísl auglýsingum drapst sýningarvélin og eftir fimm mín blackout byrjuðu auglýsingarnar aftur. Korteri inn í myndina drapst sýningarvélin aftur svo við Tóti ákváðum að fara heim, nenntum þessu ekki, ætluðum bara að fara seinna á myndina því okkur leist vel á það sem við vorum búin að sjá.

Svo er lífið bara þannig að einhverja hluta vegna gáfum við okkur ekki tíma til að fara aftur á þessa mynd og sjá hana í það skipti. Þegar ég fann tíma var hætt að sýna hana í bíó. Hvað gerir maður þá? Nú... maður bíður auðvitað eftir myndinni á vídeó, nema það varð löng bið.

Þessvegna pantaði ég mér hana í gær, útgáfudaginn, því ég gat bókstaflega ekki beðið lengur með að vita hver Duddits er. Og nú, þegar ég veit hver hann er, líður mér svo miklu, miklu betur. Góð mynd.

Ég fór á kentucky í kvöld og fékk kjúlla og líkkistu-dót fyrir Dodda. Bað sérstaklega um Drakúla, sem ég fékk, og Doddi hoppaði hæð sína af kæti. Verst að hann er grænn í framan. Jóhönnu fannst það nú frekar glataður Drakúla en við Doddi ákváðum bara að hann væri með ælupest. Það virkaði.

klipping.jpgJúlía systir kom í heimsókn og ég tók hana í manicure. Í þakklætisskyni og líklega af hreinni góðmennsku lagaði hún hárið á mér, sem ég klippti í einhverju blackouti um daginn. Nei... ég er ekki að tala um þegar ég klippti á mér toppinn... ég er að tala um þegar ég rankaði við mér við baðherbergisspegilinn, butt naked, með skæri í annarri hendi og hárlufsur í hinni. Ég hafði hreinlega klippt mig í einhverju æði og það var missítt á mér þegar það þornaði.

Af þessum sökum hef ég orðið að vera með hárið í tígó til að fólk sæi ekki síddarmuninn síðustu daga.

Núna er Júlía hinsvegar búin að klippa á mig pornó stjörnu þvertopp og laga síddarmuninn. Úff... ég er svo flott! Sérstaklega með fléttur...


| anna | 1:49 |
comments

Ekkert verið neitt á msn, ha?
Voða einmanalegt í lokaverkefnunum sad

Nr. 1 | posted by: Harpa | 29.11.2003 | 2:12:56 | [+] |

Mynd af hárlistaverkinu?

Nr. 2 | posted by: AlanHudson | 29.11.2003 | 6:18:44 | [+] |

Hvernig finnst þér? Ég er ekkert smá ánægð með mig með fléttur colgate

Nr. 3 | posted by: anna | 29.11.2003 | 17:44:27 | [+] |

Já Harpa.. sorrí.. ég var beat í gær.. bloggaði og fór að sofa. Í dag er ég með matarboð en á morgun... msn date?

Nr. 4 | posted by: anna | 29.11.2003 | 17:45:18 | [+] |

Uss uss, þetta er nú ekki verra en þegar ég renndi trimmaranum í gegn sællar minningar. Hélt að það væri nú ekki mikið mál að redda professíonal lúkk klippingu með slíkt tryllitæki í höndunum. Gleymdi að ég hef ekki augu í hnakkanum, konan bjargaði mér og mannorðinu að lokum. Ekki í fyrsta sinn.

Nr. 5 | posted by: AlanHudson | 29.11.2003 | 21:39:37 | [+] |

Já, ég klikkaði á sama smáatriði.. ég hef einmitt ekki heldur augu í hnakkanum wink

Vissi samt að Júlía myndi redda mér... það er gott að eiga góða að!

Nr. 6 | posted by: anna | 29.11.2003 | 21:56:44 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web