www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Án gleraugna
Fimmtudagur, 27. nóvember 2003

Stundum, þegar ég fer út að skemmta mér, fer ég gleraugnalaus. Stundum er ég með linsur... stundum ekki.

Fyrir hundrað árum (mínus eitt núll) var ég eitthvað fúl út í Tóta og ákvað að fara í partí með vinkonu minni. Í partýinu þekkti ég engan nema vinkonu mína en hún þekkti flesta. Þetta var bekkjapartí. Ég sat í þétt setnum sófanum inní stofu og hugsaði Tóta þegjandi þörfina, sjónlaus og pirruð þar sem ég hafði ákveðið að fara gleraugnalaus og átti ekki linsur.

Ég kveikti mér í sígarettu. Þegar ég var búin drepa í henni vippaði gestgjafinn sér að mér og hvíslaði: "Þú varst að drepa í hnetumixinu".
Það sem ég hélt að væri öskubakki fullur af stubbum og ösku var í raun skál full af hnetumixi. Ég var búin að slá öskunni af sígarettunni samviskusamlega í hnetumixið og endaði með grand finale og drap í hnetunum! Kannski ekki skrítið að engin þorði að tala við mig.

Ég held ég hafi sjaldan skammast mín eins mikið, bað gestgjafann innilega afsökunnar og óskaði að gólfið myndi gleypa mig. Útskýrði auðvitað fyrir henni að ég væri nú hálf sjónlaus, heyrnalaus og misþroska eftir að ég datt á hausinn sem krakki úr efri koju.

Hún tók þessu furðu vel, fjarlægði stubbinn og blés í hneturnar og lét það duga en fór að spjalla við mig og ég.. að drepast úr skömm.. hékk á hverju orði eins og það væri það áhugaverðasta sem ég hefði á ævinni heyrt. Það var nú það minnsta sem ég gat gert. Eða hvað?

Nei.. þetta átti eftir að draga verri dilk á eftir sér.

Þegar gestgjafinn var búin að segja mér nánast allt um sitt líf og ég eins áhugasöm og hægt er að vera, bauð hún mér að koma með sér upp í herbergið sitt. Þar eyddi ég restinni af partýinu í að skoða myndir með henni af fjölskyldunni og vinum... fólki sem ég hef aldrei séð áður, hvorki fyrr né síðar.

Ég hef aldrei verið eins fegin að komast heim eins og þetta kvöld. Búin að fá upp í kok af myndum af ókunnugu fólki og sögu fyrir hverja og einustu mynd.

Það hefur ekki komið fyrir mig aftur að drepa í hnetum. Ekki einu sinni mínum eigin....


| anna | 12:38 |
comments

Gæði umfram magn gaman að sjá það

Nr. 1 | posted by: Kolbeinn Marteinsson | 28.11.2003 | 20:12:25 | [+] |

AHAHAHAaaaaaHHHAaaaa...aaahhhaaaaaa
Ég pissaði í mig í fyrstu þrem efnisreinunum! ´Það verður efitt að þrífa setuna á stólnum... Hvar er Martha Stewart þegar maður þarf á henni að halda?

Nr. 2 | posted by: Júlía | 29.11.2003 | 22:12:58 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web