www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Að blogga íðí
Sunnudagur, 02. nóvember 2003

Maður á auðvitað ekki að blogga íðí... but I don't give a shit.

Það lítur út fyrir að ég fái.. en samt ekki víst. Ég er að hlusta á Boys Town gang - Youre just too good to be true og ég spyr mig... hver er það?

Ég væri ekkert smá til í að hitta þá manneskju, sem er too good to be true...

Annars þegar ég sat í stól í partýinu varð mér hugsað um rottur.. og hvernig þær eru út um allt. Erum við, mannfólkið, eitthvað öðruvísi? Við erum fokking allstaðar! Það er engin friður fyrir okkur...

En... youre just too good to be true.. can't take my eyes off of you...

I love you baby...

Að lokum...

Ég vil ekki trúa því að fólk fari á heimasíður bara fyrir grafík. Ég NEITA að trúa því. Ég vil trúa að fólk fari á síður fyrir content. Hvað heldur þú?


| anna | 2:16 |
comments

Tja, sumir segja "Content is King". Fólk segir annars svo margt. T.d.
þegar verðbréfamarkaðurinn er á leið til andskotans segja menn "Cash is King". En...."you're just to godd to be true" var ansi fín sena í "Deer Hunter". Svona eftirá kannski tilfinningalega yfirdrifin, en ágætur kontrast við það sem á eftir fylgdi. Rússneska rúllettusenan var sterk, þrælspekúlatív auðvitað, en með dálítið af þessari "Jaws" sjokkspennubyggingu. Þú veist hvað kemur til með að gerast. Bara ekki hvenær.

Nr. 1 | posted by: Refurinn Loki | 2.11.2003 | 7:52:48 | [+] |

Allir eru sjálfhverfir. Hver og einn heldur að heimurinn snúist um þá. Þeir séu miðjan. Þess vegna eru allir að alhæfa. En alhæfa alltaf um aðra en þá sjálfa. Þeir eru sérstakir. Ein algeng alhæfing er sú að fólk lesi ekki langan texta. Það eru alltaf einhverjir aðrir sem ekki lesa. Einhverjir aðrir en sá sem fullyrðir sem ekki gera. Vilja ekki innihald. Vilja ekki texta.

Ég held að þú sért í raun að tala um þetta. Þú segir.

"Ég vil ekki trúa því að fólk fari á heimasíður bara fyrir grafík. Ég NEITA að trúa því. Ég vil trúa að fólk fari á síður fyrir content. Hvað heldur þú?"

Auðvitað áttu að neita að trúa því þetta er rangt. Að sjálfsögðu fer fólk á heimasíður fyrir innihaldið. Til að lesa. Til að læra. Til að vita.

Ef það væri ekki svo þá væri enginn texti í dagblöðum. Enginn texti í bókum. Enginn texti í auglýsingum. Enginn texti neinsstaðar. Bara grafík. Bara myndir. Ekkert.

Ég ætla að alhæfa núna og segja að þetta er eitt allsherjar bull og fundið upp af fólki sem getur ekki búið til innihald. Búið til texta. Þannig réttlætir það eigið getuleysi.

Nr. 2 | posted by: igor | 2.11.2003 | 10:16:55 | [+] |

Gleymdi einni alhæfingu sem ég tel reyndar mikinn sannleik í.

Öll umræða fer ávallt niður á plan þess heimskasta sem tekur þátt í umræðunni. Hinir gefast upp á endanum við að halda umræðunni uppi og fara niður til hinna.

Það gæti skýrt það afhverju þessi umræða kemur stöðugt upp sem þú nefnir því það er ákveðið erfitt að berjast á móti "einfalt og auðmelt" umræðunni. Bara grafík.

Baráttukveðjur og haltu áfram að neita að trúa.

Nr. 3 | posted by: igor | 2.11.2003 | 10:26:34 | [+] |

Þessi pirringur minn út í grafík kom til vegna þess að í partýinu var strákur sem hafði fengið þær upplýsingar frá heimasíðugerðarmanni að það skipti ekki máli hvernig heimasíðan hans væri svo lengi sem hún væri flott og með flotta grafík. "Það les engin heimasíður" sagði hann. Og við erum að tala um heimasíðu fyrir fyrirtæki.

Ég er fullkomlega ósammála þessu og já... ég mun halda áfram að neita að trúa. Enda tala notendakannanir mínu máli. smile

Nr. 4 | posted by: anna | 2.11.2003 | 13:43:54 | [+] |

Þetta svar þitt kemur mér ekki á óvart. Þú tókst kannski eftir því að ég sagði í minni fyrri færslu að þessir frasar væru fundnir upp af fólki sem gætu ekki búið til innihald.

Fólkið sem ég er að vísa í eru einmitt hönnuðir, teiknarar, auglýsingafólk, heimasíðugerðarfólk o.s.frv. Auðvitað ætla ég ekki að alhæfa að allir séu svona en því miður of margir. Þú kemur þarna með eitt dæmi.

Og hver heldur þú að ástæðan sé? Svarið er einfalt. Viðkomandi getur einfaldlega ekki sett það innihald á vefinn sem áhuga vekur. Þess vegna kemur hann með þessa "afsökun". Hann getur ekki samið textann og segir þá einfaldlega að enginn lesi "langan" texta og setur þá bara inn myndir eða grafík. Af því hann er hönnuður í þessu tilviki en auðvitað ætti hann að fá sér ráðgjöf hjá einhverjum varðandi innihaldið.

Ekki það að hönnun skipti ekki máli. Auðvitað skiptir hún máli t.d. til að ná athygli en þegar athyglinni er náð þá þarf að vera eitthvað innihald til að halda fólki á staðnum, koma skilaboðum á framfæri og breyta viðhorfi.

Núna má viðkomandi spyrja sig þessarar spurningar. Hver er tilgangur með vefnum? Einfalt svar. Koma skilaboðum á framfæri til væntanlegra viðskiptavina. Hvernig er skilaboðum komið á framfæri ef ekkert er sagt - ekkert er innihaldið? Það er auðvitað ekki hægt.

Og síðan væri gott fyrir viðkomandi að spyrja sig. Afhverju er verið að koma skilaboðum á framfæri. Svar við því væri að t.d. vildi hann reyna að breyta viðhorfi til vöru eða þjónustu viðkomandi fyrirtækis. Og þá verður að vera eitthvað innihald. Það verður að segja eitthvað.

Markmið og tilgangur heimasíðna fyrirtækja getur ekki verið neinn annar en þessi. Sama gildir um auglýsingar.

Nr. 5 | posted by: igor | 2.11.2003 | 15:50:31 | [+] |

Ég er hjartanlega sammála þér. Það fyrsta sem fólk/fyrirtæki þurfa að gera, þegar það ákveður að halda úti heimasíðu, er að spyrja sig: "Til hvers ætla ég að halda úti heimasíðu?, Hvaða tilgangi á heimasíðan að þjóna?"

Það er t.d. sorglegt að sjá hversu margar heimasíður sleppa t.d. að hafa einfaldar upplýsingar eins og símanúmer og heimilisfang, opnunartíma o.s.frv.

Það má vel vera að sumir surfi heimasíður til að úa og ahh-a yfir hvað þær eru flottar en ég held að það sé minnihluti notenda.

Ég fann mikið fyrir þessu, þ.e. notagildi heimasíðna, þegar ég var að kaupa mér bíl fyrir einhverjum árum síðan. Sum bílaumboðin voru með það sem ég vil kalla "glanstímarita-heimasíður" sem var gjörsamlega óþolandi að skoða upp á að fá einhverjar haldbærar upplýsingar um vöruna sem þeir voru að selja, aðrir stóðu sig mjög vel en ég endaði á að afla mér upplýsinga á erlendum vefjum.

Það eru samt margir hönnuðir sem eru með allt á hreinu og gera functional og flottar heimasíður. Mér finnst flott grafík alveg eiga rétt á sér á netinu en hún á ekki að vera fyrir og hún á ekki að skemma notendaviðmótið.

Mér finnst líka rétt að taka fram að mér finnst t.d. anna.is ekki vera "hin fullkomna heimasíða" notendalega séð. Ekki badabing.is heldur.

Nr. 6 | posted by: anna | 2.11.2003 | 16:11:12 | [+] |

Að þú fáir..........?
Við verðum að fara að hittast á msn, þetta gengur ekki lengur. Ég er að detta út úr netheimum sökum anna og þú ert farin að taka upp á því að detta íða svona óforvarendis. Svo talar þú bara í gátum og ég er að rifna úr forvitni what wave

Nr. 7 | posted by: Harpa | 2.11.2003 | 21:17:17 | [+] |

Já ég er búin að vera rosa bissí og lítið í netheimum líka, en til að svala forvitni þinni.. þá fékk ég það. colgate

Nr. 8 | posted by: anna | 2.11.2003 | 23:24:13 | [+] |

Var það gott? embarassed happy

Nr. 9 | posted by: Harpa | 3.11.2003 | 0:14:44 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web