Laugardagur, 04. október 2003
A long time ago.. in a world far, far away.. sat ég viđ tölvuna mína ađ surfa netiđ.
Ég var ađ skođa goth síđur ţegar ég rakst á banner međ mynd af ţessum strák. Ég vissi ađ ég hafđi séđ hann áđur en kom honum ekki fyrir mig. Ég bookmarkađi síđuna og braut heilan um ţetta í tvo daga en komst bara ađ ţví ađ ég hafđi séđ ţessa teikningu áđur en vissi ekki hvar. Ég sendi webmasternum á heimasíđunni sem ég fann myndina á póst og spurđi hann hver ţessi strákur er. Nokkrum mínútum síđar fékk ég svariđ. Ţetta er Max úr bókinni Where the Wild things are.
Ég fór á Amazon og ţegar ég sá kápuna á bókinni mundi ég hvar ég sá hana. Á leikskóla í Furugrund var lítil gluggalaus kompa sem ég eyddi ófáum stundum í. Ţetta var bókasafn leikskólans. Ţar sem mamma var leikskólastjóri ţarna var ég hálfgerđur heimalingur á leikskólanum en ég eyddi miklum tíma á bókasafninu og oftast međ ţessa bók.
Ég hringdi í öll bókasöfn á landinu en engin átti ţessa bók. Sumir könnuđust ađeins viđ nafniđ en ekki mikiđ meira. Ég pantađi bókina á Amazon.
Í ţessari bók segir frá Max sem er óţekkur strákur og ţegar hann óţekktast endalaust sendir mamma hans hann í rúmiđ og segir ađ hann fái engan kvöldmat. En Max er alveg sama. Skyndilega fer herbergiđ ađ breytast í frumskóg og Max siglir til landsins ţar sem villi verurnar búa. Hann verđur kóngur villi veranna og ţćr tilbiđja hann. En Max leiđist. Hann saknar herbergisins síns og fer frá villi verunum.
Ég ćtla ekki ađ gefa upp endirinn á bókinni en teikningar Maurice Sendak eru magnađar.
Ég hef líklega veriđ ca 8 eđa 9 ára ţegar ég var ađ skođa ţessa bók í litlu bókasafnskompunni og skildi takmarkađa ensku. Ţađ var alveg einstök upplifun ađ fá ţessa bók í hendurnar og lesa hana í fyrsta skipti á ćvinni og hún var alveg eins góđ og mig minnti.